- Advertisement -

Ríkisstjórnin veður áfram á skítugum skónum

Leiðari: Verðbólgan er yfir öllum þeim mörkum sem við bæði viljum og þurfum. Núverandi ríkisstjórn er ekki hótinu skárri en þær sem á undan hafa setið. Þeim hluta þjóðarinnar, sem minna og minna hefur, bíður að berjast við óvinnandi fjanda. Enn og aftur og aftur og enn.

Vaxta- og verðbólgu sleggja Kristrúnar hefur reynst vera búmerang. Því miður. Enn og aftur er allt á sömu bókina lært.

Ég segi fyrir mína parta að ég einfaldlega nenni þessu ekki lengur. Hávextir og verðtryggingar er það eina sem við blásaklaus almenningur verðum að láta yfir okkur dynja. Vaxtatekjur bankanna voru 179 milljarðar króna í fyrra. 179 milljarðar í ofteknum vöxtum okkar sem er föst í krónuhagverkinu. Stjórnendur bankanna ráða þessu alfarið sjálfir. Ógeð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég segi nei.

Ég þekki mikið ríkan mann. Hann sagði að eftir að hannn varð ríkur þá bara varð hann ávallt ríkari og ríkari. Hann get ekki skýrt hvers vegna. Þannig sé bara að vera ríkur. Þannig er örugglega um fleiri, marga fleiri.

Í svo mörg, mörg ár hefur fólk í stjórnmálum sagt pass þegar kemur að stjórn efnahagsmála. Bæði í ríkisstjórnum og Seðlabanka. Því miður. Helvítis fokking fokk.

Ég segi nei. Ég vil ekki borga hærri vexti. Ef ráðafólkið finnur ekki aðra leið þá þarf að fara. En það sem verst er að borin von er um að eitthvað betra komi í staðinn. Utan standa flokka sem hafa aldeilis gert í deigið sitt, eða okkar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: