- Advertisement -

Framsókn er í bullandi vandræðum

Sigurjón Magnús Egilsson:

Eitt er víst að framundan eru átakatímar í stjórnmálunum. Næst eru það byggðarkosningarnar. Margir eiga mikið undir þar. Ekki síst gömlu helmingaskiptaflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.

Leiðari: Spennandi tímar framundan í pólitíkinni. Bæði í landsmálunum sem og í hinum ýmsu sveitarfélögum:

Elsti stjórnmálaflokkur Íslands, Framsóknarflokkurinn, er í bráðri hættu. Nú þegar styttist í 110 ára afmæli flokksins.

RÚV birti í gær niðurstöður úr nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sjá hér að neðan:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eins og sést myndu aðeins fimm flokkar ná á þing. Talsvert er um liðið síðan það gerðist síðast. Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknar. Hún hefur sagt að Framsókn muni skipta um kúrs. Fjalla meira um efnahagsmál. Enda er Lilja sprenglærður hagfræðingur. Lilja mun þurfa að standa í ströngu við að boða nýjar áherslur flokksins. Sjálf utan Alþingis. Eftir stórt og sárt tap í þingkosningunum 2024.

Á skýringarmynd RÚV vantar flokka eins og VG og Pírata.

Annað sem vekur athygli er að Samfylkingin bætir við sig þrátt fyrir erfiðleika stjórnarinnar. Hinir stjórnarflokkarnir tveir, Viðreisn og Flokkur fólksins, tapa miklu fylgi. Samt heldur ríkisstjórn meirihluta á Alþingi.

Forsvarsfólk Sjálfstæðisflokksins hefur barist um hæl og hnakka. Og uppsker eitthvað. Fylgishrunið hefur stöðvast og flokkurinn hefur endurheimt hluta þess sem hefur tapast á síðustu mánuðum.

Eitt er víst að framundan eru átakatímar í stjórnmálunum. Næst eru það byggðarkosningarnar. Margir eiga mikið undir þar. Ekki síst gömlu helmingaskiptaflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: