- Advertisement -

Afhjúpandi fyrir það spillta samfélag sem enn þrífst á Íslandi

Heyr á endemi.

Sigmumdur Ernir skrifar leiðara Fréttablaðsins í dag. Að venju hittir hann naglann á höfuðið. Skoðum betur:

„Nýjustu vendingar í þessu bankasöluklúðri eru einstaklega afhjúpandi fyrir það spillta samfélag sem enn þrífst á Íslandi, og mun sjálfsagt áfram gera í samfélagi þar sem glæpir og afbrot eru flokkuð eftir því hverjir standa að þeim.“

Næst kemur þessi kafli: „Margt bendir til þess að starfsmenn Íslandsbanka hafi nýtt sér innherjaupplýsingar til að auðgast sjálfir á útboði Bankasýslunnar á síðasta ári. Þeir hafi haft innanhússforskot á aðra kaupendur – og nýtt sér það óspart. Öðruvísi verður frummat fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á framkvæmd útboðsins ekki skilið. Í matinu kemur fram að eftirlitið telji að bankinn kunni að hafa brotið gegn ákvæðum laga og reglna sem gilda um bankann og starfsemi hans.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Forkólfar Íslandsbanka hafa séð sig knúna til að senda frá sér tilkynningu vegna frummatsins, þess efnis að sáttaferli sé hafið á milli bankans og eftirlitsins. Heyr á endemi – og er hér ólíku saman að jafna við það sem yfirmenn bankans hafa áður haldið fram, en þeir hafi einmitt farið að öllum settum reglum við söluferlið.

Af hverju í ósköpunum þarf hann þá að taka þátt í sáttameðferð með Seðlabanka Íslands? Það verður ekki túlkað öðruvísi en svo að hann viðurkenni að lög hafi verið brotin innan bankans – og að grandalausir eigendur hans, almenningur, þurfi nú að sæta því að bankinn greiði háa sekt vegna lögbrota. Og til að kóróna vitleysuna eru bankamennirnir nú komnir í meðferð,“ og þannig endar besti leiðari þessa dags.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: