- Advertisement -

Bílvelta við Bústaðarveg: Grunur um ölvun við akstur – Betur fór en á horfðist

Eins og sést á myndinni viðþessa frétt valt bíll undir mislægum gatnamótum Hringbrautar og Bústaðavegar í nótt um klukkan hálf tvö.

Bæði ökumaður og farþegi voru flutt á Bráðadeild til aðhlynningar, en sem betur fer voru meiðsli viðkomandi ekki alvarleg.

Kemur fram að ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur; bæði ökumaður og farþegi voru teknir höndum og vistaðir í fangageymslu lögreglu þegar aðhlynningu var lokið á Bráðadeild.

Bíllinn var fjarlægður af vettvangi með króki og í kjölfarið var orkuveita ræst út vegna tjóns á ljósastaur vegna bílveltunnar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

– Trausti


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: