- Advertisement -

Birgir vill breytingar og það strax

Alþingi „Spyrja má hvort þær breytingar sem Alþingi gerði á lögum um leigubifreiðar hafi dregið úr öryggi farþega. Samkvæmt lögunum á að endurskoða þau á næsta ári og ég skora hér með á hæstv. innviðaráðherra að beita sér fyrir því að þau verði endurskoðuð strax,“ þannig talaði Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, áður Miðflokksins.

„Ný lög um leigubifreiðaakstur tóku gildi fyrir tæpu ári síðan. Grundvallarbreyting var gerð á lagaumhverfi leigubifreiðaaksturs. Fjöldatakmarkanir og stöðvaskylda voru m.a. afnumin. Auk þess þurfa leigubílstjórar ekki lengur að tala íslensku og það er, frú forseti, dapurleg breyting. Alþingi á að standa vörð um íslenskuna í allri lagasmíð. Mér skilst að meiri hluti handhafa nýrra leyfa til leigubílaaksturs í dag tali ekki íslensku og það er sannarlega áhyggjuefni. Nýju lögin um leigubifreiðar voru umdeild og mótmæltu stéttarfélög leigubifreiðastjóra þeim harðlega. Eitt af áhyggjuefnum umsagnaraðila var öryggi farþega, að öryggi farþega yrði stefnt í hættu. Vísað var m.a. til reynslu frá Svíþjóð eftir breytingu á leigubílalögum þar í landi. Þessar áhyggjur hafa því miður raungerst. Okkur var öllum brugðið við fréttir þess efnis að erlendur leigubifreiðastjóri, sem kom til landsins fyrir fáeinum árum sem hælisleitandi, sé grunaður um gróft kynferðisbrot, sé grunaður um að hafa nauðgað farþega sínum. Eitt af skilyrðum þess að fá að aka leigubifreið er gott orðspor með tilliti til refsiverðrar háttsemi,“ sagði Birgir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: