- Advertisement -

Bjarni, hefndirnar og varnir Viðreisnar

Framgangan gegn Þorvaldi Gylfasyni er hreint ótrúleg. Allt er þetta á ábyrgð eins manns, Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokks. Hann hefur húsbóndavaldið í fjármálaráðuneytinu. Einn og enginn annar.

Bjarni á til með að vera ósköp smár maður. Af þessu tilefni langar mig að birta eigin skrif sem sýna vel smæð Bjarna Benediktssonar. Sem og varnir Viðreisnar. Sem voru með ólíkindum.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti í heyrandi hljóði að hann ætlaði aldrei að tala við mig framar. En hvers vegna? Jú, hann sagði mig hafa borið út óhróður um sig og fjölskyldu sína. Það er rangt, hjá þér, svaraði ég. Hann gaf sig ekki, hækkaði róminn og gaf sig ekki. Ég bar enn af mér sakir. Hann sá af sér, dró aðeins í land og sagði mig hafa lækað færslu á Facebook sem hann væri ekki sáttur við. Ég spurði hvort ákvörðun hans um að tala aldrei framar við mig breyttist við þetta. Nei. Hann lagði áherslu á neiið.

En hver var færslan, jú þessi: „Engey er víða. Áður en neyðarlögin voru sett hringdi Sturla Pálsson, hagfræðingur í Seðlabankanum, í konu sína, Helgu Jónsdóttir, eins og fram kom í Kastljósi, og upplýsti um yfirvofandi aðgerðir bankans. Helga er dóttir Guðrúnar Sveinsdóttur, systur þeirra Einars og Benedikts Sveinssonar, stórtækra fjárfesta. Benedikt er faðir Bjarna, sem nú er fjármálaráðherra. Hann og Helga eru systkinabörn. Áður en neyðarlögin voru sett fengu Engeyingar því viðvörun og svigrúm til að bjarga sínu. Algjörir snillingar.“ Það var bróðir minn Gunnar Smári Egilsson sem skrifaði og ég lækaði. Færslan birtist 19. október s.l.

Af orðum ráðherrans má telja víst að hann verji talsverðum tíma til að lesa Facebook og sjá hver skrifar hvað, og hverjum líka skrifin og hann safni þá saman upplýsingum um það fólk sem hann telur vinveitt og óvinveitt.

Viðreisn og Hringbraut

Ég vann nokkra þætti fyrir Hringbraut, sem ég nefndi Svartfugl. Skemmst er frá að segja að þættirnir fengu fínasta áhorf og allir voru sáttir. Ákveðið var að hittast í sumar og ákveða fyrirkomulagið í haust. Starfsmenn stöðvarinnar sögðust hlakka til að fá mig aftur og ekki síst þáverandi aðaleigandi.

Sjónvarpsstjóri og dagskrárstjóri Hringbrautar gerðu ráð fyrir þáttunum mínum í vetrardagskrá stöðvarinnar. Á fundi sá ég að ekki var allt eins og stefnt var að. Ég spurði hvort svo væri að nýir fjárhagslegir bakhjarlar stöðvarinnar vildu mig ekki á dagskrá, gegnt vilja stjórnenda stöðvarinnar. Grunur minn reyndist réttur. Peningavaldið beitti sér. Sagði nei. En hvers vegna? Þættirnir höfðu jú fengið fínasta áhorf. Jú, gagnrýnin skrif mín um Viðreisn gerðu útslagið.

Áhugi minn fór nú minnkandi. Meðal annars vegna þess að Hringbraut hefur ekki getað  gert upp við mig og skuldar mér, á minn mælikvarða, umtalsverða peninga.

Starfsmenn Hringbrautar fengu þrátt fyrir það leyfi mitt til að reyna áfram. Lokasvarið var það sama og áður. Nei, sögðu peningarnir og tóku fram fyrir hendur starfsmanna og stjórnenda stöðvarinnar. Nú hafa orðið breytingar á eignarhaldi. Þeir sem áður höfðu neitunarvald um dagskrá stöðvarinnar hafa nú eignast hana og hafa því væntanlega alræðisvald. Og enn skuldar Hringbraut mér peninga.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: