- Advertisement -

Borgin sló á sáttarhönd láglaunafólks

Efling.is: Samninganefnd Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg lýsir vonbrigðum með viðbrögð Reykjavíkurborgar við tilboði sem samninganefndin lagði fram á fundi hjá Ríkissáttasemjara í gær, þriðjudaginn 18. febrúar. Viðbrögð borgarinnar komu fram í dag. Er þetta í þriðja sinn sem samninganefnd Eflingar leggur fram viðræðugrundvöll til lausnar á deilunni sem borgin hafnar.

Í tilboðinu var lagt til að greiða starfsfólki sérstakt starfstengt leiðréttingarálag til viðurkenningar á faglegri ábyrgð, álagi, starfstengdum kostnaði og fleiri þáttum sem félagsmenn hafa lagt áherslu á í viðræðunum. Upphæðir og forsendur álagsins yrðu ákvarðaðar út frá einstökum starfsheitum og vinnustöðum. Álagið yrði sérstök aukagreiðsla og kæmi ekki inn í grunnlaun til útreiknings á yfirvinnu- og vaktaálögum.

Einnig var gert ráð fyrir uppbótum vegna sérgreiðslna frá fyrra samningstímabili sem borgin hefur krafist að falli út. Lagt var til að upphæðir nýrra álaga og uppbóta taki sambærilegum hækkunum og launataxtar á samningstímanum. Fallist var á tillögu borgarinnar um breytta launatöflu.

Samninganefnd og starfsfólk Eflingar lögðu mikla vinnu í tillöguna og var hún lögð fram að höfðu samráði við trúnaðarmenn félagsins hjá borginni. Reykjavíkurborg hefur enn á ný slegið á sáttarhönd láglaunafólks. Ótímabundið verkfall heldur áfram.

Sjá meðfylgjandi yfirlýsingu frá samninganefnd Eflingar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: