- Advertisement -

Brynjar greinir stöðu Samfylkingarinnar: „Fyrst og fremst í hagsmunagæslu fyrir RÚV“

Brynjar Níelsson greinir stöðu Samfylkingarinnar: „Fyrst og fremst í hagsmunagæslu fyrir RUV“

„Menn hafa velt því fyrir sér hvernig á því standi að Samfylkingin sé í frjálsu falli á sama tíma og hún er í stjórnarandstöðu á krepputímum og helsti keppinautur þeirra um atkvæði á vinstri vængnum er í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Frjálst fall við þessar aðstæður hlýtur að vera einhvers konar met,“ skrifar Brynjar Níelsson þar sem hann greinir bága stöðu Samfylkingarinnar.

„Margir hafa um kennt klúðurslegri uppstillingu á lista flokksins í Reykjavík. Það geti aldrei leitt til góðs að stilla ofarlega á lista flóttamanni frá Vg sem alltaf er með krepptan hnefa í vasa og síðan blaðamanni frá Stundinni sem aldrei hefur lagt neitt gott til og eina ástæðan fyrir að hann dregur andann er andúð og hatur á Sjálfstæðisflokknum. Einkennandi fyrir störf þeirra beggja er hagsmunagæsla fyrir aðra en þá sem byggja þetta land.

Sjálfur held ég að innanflokksátök og klúður við uppstillingu sé ekki megin ástæðan fyrir fylgistapinu. Tækifærismennska, sem allir eru farnir að sjá í gegnum, skaðar flokkinn mest til lengri tíma. Í stað þess að tala fyrir stefnu sinni endurómar Samfylkingin það sem hún telur vinsælast á samfélagsmiðlum hverju sinni þegar hún er ekki að tala um hvað aðrir eru spilltir og óheiðarlegir. Enginn flokkur nýtur trausts eða skapar sér trúverðugleika sem slíkri framgöngu.

Á tyllidögum talar Samfylkingin um að hún sé að gæta hagsmuna þeirra sem standa höllum fæti. En hún gerir það ekki með því að tala sífellt niður og tortryggja atvinnulífið. Öflugt atvinnulíf er forsenda velferðar. Flokkar sem telja að velgengni í atvinnulífinu sé á kostnað almennings eiga ekkert erindi í pólitík. Fólk upplifir að Samfylkingin sé fyrst og fremst í hagsmunagæslu fyrir RUV og þröngan hóp í mennta- og menningarelítunni, stundum kallað fræga fólkið, sem heldur að heimurinn snúist um það sjálft.

Þrátt fyrir þessa færslu liggur alveg ljómandi vel á mér. Ég er bjartsýnn á framtíðina og hef mikla trú á þessari þjóð. Við þurfum bara að losna við samfélagsmiðlana, þá eru okkur allir vegir færir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: