- Advertisement -

Dómsmálaráðherra Miðflokksins…

Hún er nefnilega bara að stunda einhverja sóðalegustu pólitík sem hægt er að stunda sem er að taka þátt í gremju andstæðinganna og beina henni að fólki sem skiptir suma stjórnmálamenn engu máli enda ekki með kosningarétt.

Atli Þór Fanndal.

Facebook: Atli Þór Fanndal skrifaði þessa ágætu grein:

Dómsmálaráðherra Miðflokksins hefur nú mánuðum saman ýjað að ýmsu og stundað massífa hundaflautupólitík. Þetta finnst félögum hennar alveg gasalega mikil strategía að kynda endalaust undir orðræðu um að hingað flæði fólk í ósmekklegum tilgangi og hún sé nú svo mikið járnkvendi að hún muni ekki standa fyrir opin landamæri eða einhverja gervilógík eins og að meta fólk sem manneskjur fyrst.

Dómsmálaráðherra hefur þó ekkert lagt til sem neinu skiptir. Hún er nefnilega bara að stunda einhverja sóðalegustu pólitík sem hægt er að stunda sem er að taka þátt í gremju andstæðinganna og beina henni að fólki sem skiptir suma stjórnmálamenn engu máli enda ekki með kosningarétt.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Gauti Kristmannsson er prófessor og deildarforseti Íslensku- og menningadeilda Háskóla Íslands.

Þetta snýst ekkert um að fækka innflytjendum heldur að lögmæta það að níðast á þeim. Bara svona eins og hómófób sem vissulega ætlar sér ekki að berja kynvillinga en fjandinn hafi það að hann sætti sig við að geta ekki án gagnrýni gert hinsegin fólki upp allskonar ætlanir og hættur.

Þessi ríkisstjórn er að leika sér að eldi sem er stórhættulegur. Það spilar enginn með fasista. Maður mætir vonleysi með von, skort með fjárfestingu, íhaldi með meira frelsi og gremju með gleði og gjörðum í þágu betra lífs. Þetta mun enda illa. Þennan eld ræður enginn við. Alveg sama hvað þau telja sig gáfuð og sniðug…. yfirburðar jafnvel…

Fasismi er pólitískur narsisismi en ekki skýrar hugmyndir eða stefna. Það að viðhalda gremju, grafa undan normum og búa til hræðslu er tilgangurinn en ekki leið að einhverju markmiði. Að taka undir og láta eins og einhver glóra sé í gremjunni er að vinna skítverk fyrir þau en ekki að fara að kæfa þau.

Þannig breytist maður í það sem maður þykist hata. Þetta snýst um að fá að koma illa fram við fólk, viðhalda gremju, skapa skort og telja fólki trú um að aðrir séu að stela hamingju með því að finna hana. Það eru engin dæmi í sögunni um sigur með því að spila með.

Ég mun aldrei styðja svona enda þekki ég alveg hvernig þetta gengur fyrir sig… fyrst hælisleitendur, svo múslimar, svo nemendur, svo ‘latir’ útlendingar (brúnt fólk) svo allir…. viljið þið annað dæmi?

Munið þegar Miðflokkurinn þóttist bara vera að hugsa um börnin í transumræðunni? Þau voru nú ekki lengi að hata allt hinsegin fólk sem vogar sér að vera hamingjusamt og skammast sín ekki fyrir að vera hinsegin…. en Eldar heimsins eru velkomnir…

Ekki taka þátt í gremju. Það eru ekki innflytjendur sem stjórna þessu landi heldur fólk eins og dómsmálaráðherra og notar aðstoðarfólk sitt til að ljúga að þér að innflytjendur séu ástæða eigin dugleysis.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: