Mér finnst mikilvægt að koma ekki inn með einhverjum gassagangi, heldur af ákveðinni auðmýkt og virðingu.
Dóra Björt Guðjónsdóttir.
Umræðan/Facebook: Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifaði:
Kæru vinir.Ég er svo innilega þakklát fyrir hlýjar móttökur eftir að ég tók það djarfa skref að flytja mig yfir í Samfylkinguna.
Mér finnst mikilvægt að vera sönn í því sem ég geri, ég er í stjórnmálum af ástríðu og læt hjartað ráða för. Þess vegna var þetta skref nauðsynlegt fyrir mig. Ég er jafnarmanneskja í húð og hár og hef sýnt það í öllu sem ég geri að ég brenn fyrir jafnrétti, jafnræði og jöfnum tækifærum. Eftir hvatningu víða að hef ég tekið þá ákvörðun að láta slag standa og gefa kost á mér í forvali Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ég er manneskja orða minna. Ég er hrein og bein og heiðarleg í mínum gjörðum.
Ég læt verkin tala.
Ég læt verkin tala. Síðastliðin ár hef ég verið forystumanneskja í borginni og í formennsku umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur sem og mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs meðal annars og ég legg allt kapp á að ná árangri fyrir borgarbúa. Ég hef mikilvæga reynslu og yfirsýn og nú þegar heilir þrír dýrmætir fulltrúar í fullu starfi hafa ákveðið að hætta störfum þarf að tryggja skynsamlegt jafnvægi milli reynslu og endurnýjunar.
Ég er enn nokkuð ung þó ég rétt missi af þátttöku í Ungum Jafnaðarmönnum og er með ung börn í leik- og grunnskóla og er í samskiptum við einhverjar mikilvægustu stofnanir borgarinnar á degi hverjum. Það sem ég hef unnið að og óska umboðs til að vinna að áfram er:
Öruggara umhverfi fyrir börnin okkar svo við foreldrar getum andað léttar en sömuleiðis elsku börnin með hreinu lofti. Valfrelsi um ferðamáta og nútímalegir og samkeppnishæfir borgarinnviðir með göngu- og hjólavænni borg og Borgarlínu.
Öruggt húsaskjól og stöðugri húsnæðismarkaður með óhagnaðardrifinni uppbyggingu í þágu ungs og efnaminna fólks sem við sjáum að skiptir sköpum og hefur temprað leiguverð. Sjálfbær nýting lands með þéttingu byggðar en það er ekki sama hvernig það er gert, það verður að tryggja gæðin og þar kemur nýsamþykkt borgarhönnunarstefna sterk inn en ég fór fyrir mótun hennar. Nú þarf að passa upp á innleiðinguna.
Ábyrgð í rekstri og stjórnun.
Jafnrétti og velferð okkar allra og að tryggja jöfn tækifæri fólks óháð kynhneigð, kyni, stétt og stöðu. Skaðaminnkandi nálgun og að verða ekki meðvirk með þessu ömurlega bakslagi gegn stöðu hinsegin og trans fólks og jafnrétti kynjanna almennt.
Jafnræði og réttlæti með faglegum og lýðræðislegum vinnubrögðum, gagnsæi og skörpum og fyrirsjáanlegum ramma í kringum kerfin okkar, útdeilingu gæða og ráðningar.
Ábyrgð í rekstri og stjórnun. Við þurfum að líta í hverja krónu og skoða hvernig hægt er að leysa verkefnin á sem bestan en hagkvæmastan hátt og fara vel með auðlindir, fé og eignir almennings til að geta forgangsraðað í það sem skiptir mestu máli og hafa borð fyrir báru.
Mér finnst mikilvægt að koma ekki inn með einhverjum gassagangi, heldur af ákveðinni auðmýkt og virðingu. Mér þætti svo vænt um stuðning ykkar í 3. eða 4. sæti á lista.
Takk fyrir hlýjuna og hvatninguna. Ég vonast til að fá að vinna fyrir ykkur, Samfylkingunni, Reykjavík og Reykvíkingum öllum til heilla.