- Advertisement -

Ég legg áherslu á að Ísland verði áfram áreiðanlegt bandalagsríki og leggi sitt af mörkum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:

„Atlantshafsbandalagið er að breytast. Evrópa axlar nú aukna ábyrgð. Sem er jákvætt.

Og NATO hefur aldrei verið stærra og sterkara. Hvort sem litið er á fjölda aðildarríkja eða framlög til sameiginlegra varna. Það er stóra myndin.

Ég legg áherslu á að Ísland verði áfram áreiðanlegt bandalagsríki og leggi sitt af mörkum. Með því að styrkja öryggi og varnir landsins – ekki síst viðbragðsgetu NATO á Norðurslóðum.

Það var góður samhljómar á leiðtogafundinum í Ankara í dag. Sem forsætisráðherra nýti ég sérhvert tækifæri til að halda hagsmunum og afstöðu Íslands á lofti. Og þess vegna skiptir máli að eiga í góðu sambandi við leiðtoga okkar nánustu bandalagsríkja.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: