- Advertisement -

Engum skólameistara hefur verið vikið úr starfi

Alþingi:

Skólameistaramálið var rætt stuttlega á Alþingi í morgun. Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins, tók til varna. Fyrstur til að bauna á ríkisstjórnina var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Byrjum á ræðu Sigurjóns:

„Það er rétt að taka það fram hér, vegna orða háttvirts þingmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, að það hefur engum skólameistara verið vikið úr starfi. Það er bara ekki rétt að segja það. Það sem búið er að gera er einfaldlega það að það er búið að nýta ákvæði í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna um það að auglýsa störfin. Það er ágætt þegar verið er að ræða svona mál sem snerta einstakar persónur í samfélaginu að gera það þá með réttum formerkjum og vera ekki að blása upp mál að óþörfu. Ég held að það sé bara einfaldlega ekki við hæfi. Þetta eru mál sem snerta mikilvægt starf í skólunum. Það sem hefur verið gert af hæstvirtum ráðherra er að fara í samráðsferli og mér finnst miður að háttvirtir þingmenn séu hér að rangtúlka þetta, gera samráðið tortryggilegt. Það er einfaldlega verið að skoða hlutina í góðu samráði við aðila málsins.“

Hér er svo ræða Sigmundar Davíðs, sem var flutt á undan ræðu Sigurjóns.

Á daginn hefur komið…

„Í gær ræddi ég mikilvægi þess að Alþingi, og þar á meðal hæstvirtur forseti, haldi ráðherrum við efnið, og vísaði þar sérstaklega til umræðu og ummæla hæstvirts forsætisráðherra í skólameistaramálunum svokölluðu. Hæstvirtur forsætisráðherra brást við en ekki er annað að sjá en að þar hafi hæstv. forsætisráðherra farið með rangt mál þegar hann fullyrti að það væri ekki rétt að hann hefði haft aðkomu að brottvikningu skólameistara Borgarholtsskóla áður en það var orðinn hlutur, heldur einungis verið upplýstur um málið eftir að niðurstaðan lá fyrir. Á daginn hefur komið að hæstvirtur forsætisráðherra sagði, eins og ég benti á, að hann hafi verið upplýstur um þetta mál og eðli þess áður en ákvörðunin var tekin. Ég velti fyrir mér, frú forseti, hvort ekki sé einfaldlega komið tilefni til að ræða þessi skólameistaramál sérstaklega hér í sérstakri umræðu í þinginu fyrir áramót, því að þetta er enn að vinda upp á sig og allir skólameistarar málsins virðast vera núna í óvissu með starf sitt vegna vandræðagangs ríkisstjórnarinnar í þessu máli.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: