Alþingi: „Ég vil aðeins blanda mér í þessa umræðu,“ sagði Dagur B. Eggertsson um þá ákvörðun að Ísland og Noregur fá ekki undanþágum frá tollum á járnblendi.
„Hún undirstrikar að það er breytt staða í heiminum. Það er tollastríð og við erum að klemmast á milli. Ég tek eftir því að ýmsir þingmenn hafa gengið út frá því að tollabandalagið væri hluti af EES-samningnum. Það er það ekki. Hins vegar er fjórfrelsið hluti af EES-samningnum en við höfum þurft að semja um tollaðgang fyrir einstakar vörur samkvæmt samningnum og munum gera það áfram. Ef við værum innan ESB væru hins vegar engir tollar.
Við þurfum að meta þessa stöðu í þessu tollastríði og gæta okkar hagsmuna en ég vara við því að við erum ekki að gæta hagsmuna Íslands ef við gröfum undan EES-samningnum. Við erum ekki að gæta hagsmuna Íslands ef við tökumst ekki á við bókun 35 þar með. Við erum ekki að gæta hagsmuna Íslands ef við förum ekki að hinum alþjóðlegu leikreglum og ég vil hrósa formanni Sjálfstæðisflokksins fyrir að bregðast við þessu af ábyrgð, standa vörð um EES-samninginn og kalla eftir því að við stöndum saman um hagsmuni Íslands því það eigum við að gera.“