- Advertisement -

ESB-Skýrslan sem hvarf

Dagur B. Eggertsson þingmaður skrifar:

„Þessi skýrsla er til. Og þetta eru meðal helstu niðurstaðna hennar. Hún er frá árinu 2014 og var unnin fyrir nokkur helstu hagsmunasamtök landsins: ASÍ, Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda, auk Viðskiptaráðs.“


„Ímyndum okkur hvað við hefðum getað sparað okkur mörg rifrildi og skoðanaskipti í aðdraganda komandi þjóðaratkvæðagreiðslu ef til væri skýrsla frá síðustu viðræðum sem hefði dregið stöðuna fram við lok þeirra.

Hvað þá ef meginn-niðurstöður hennar væru þessar?

1. Ísland hafði þegar fengið ýmsar sérlausnir og undanþágur í fyrri viðræðum, en erfiðustu kaflarnir voru eftir.

2. Svigrúm var fyrir sérlausn í sjávarútvegi.

3. EES-samningur var talinn hafa reynst vel en hann fæli einnig í sér mikinn lýðræðishalla.

4. Upptaka evru hefði í för með sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.

5. Ísland fékk að bíða með aðlögun þar til aðild tæki gildi.


Þessi skýrsla er til. Og þetta eru meðal helstu niðurstaðna hennar. Hún er frá árinu 2014 og var unnin fyrir nokkur helstu hagsmunasamtök landsins: ASÍ, Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda, auk Viðskiptaráðs.

Af óútskýrðum ástæðum er skýrsluna – þrátt fyrir leit – hvergi að finna á vefsíðum þessara samtaka. Skora ég hér með á þau að bæta snarlega úr því enda mikill fengur að þessum upplýsingum fyrir yfirstandandi umræðu. Auk þess sem skýrslan ætti að vera góður grunnur fyrir þeirra eigin málflutning – sem lítið heyrist af – svo undarlegt sem það nú er.

Ég birti í morgun á Vísi, grein um hluta þessara niðurstaðna. Og birti líka ítarlega Substack-grein þar sem ég vísa í skýrsluna og vísa í heimildir varðandi niðurstöðurnar hér að ofan – skal líka setja inn hlekka á það. Og minni svo á hlaðvarpið Flekaskil, þar sem er fjallað um þetta í 15 þætti sem var að koma út. Aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum og ókeypis að gerast áskrifandi.“ 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: