- Advertisement -

Fá hingað flugfélög í skattaskjólsbraski?

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, skrifar:

Rætt hef­ur verið um að flug­fé­lög­in Blá­fugl (e. Bluebird Nordic) og Play geti fyllt í skarðið fari svo að Icelandair verði gjaldþrota. Þannig væri hægt að halda uppi flug­sam­göng­um til og frá land­inu tíma­bundið.

Er þetta virkilega leiðin sem við viljum fara?

Fá hér flugfélög í skattaskjólsbraski sem veigra sér ekki við að úthýsa störfum til Indlans eða Filipseyja eða hverra landa sem réttindi og laun eru lægst fyrir mestu vinnuna? Setja svo restina á gerfiverktöku í gegnum starfsmannaleigur?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þó ekki sé út frá flugöryggis sjónarmiðum hlýtur metnaður okkar að vera meiri en þetta.

Ég hef gagnrýnt stjórnendur Icelandair harðlega fyrir framgöngu sína gagnvart starfsfólki félagsins en mun beita mér af krafti fyrir björgun þess þegar stjórnendur hafa tryggt framtíð félagsmanna okkar án þess að gengið verði á réttindi þeirra og launakjör.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: