- Advertisement -

Frægar afsagnir stjórnmálamanna

Stjórnmál Í nóvember eru tuttugu ár síðan Guðmundur Árni Stefánsson sagði af sér sem félagsmálaráðherra og þá eru líka tíu ár frá því Þórólfur Árnason sagði af sér sem borgarstjóri Reykjavíkur.

Afsagnir þeirra beggja Þórólfs Árnasonar borgarstjóra og Guðmundar Árna Stefánssonar félagsmálaráðherra komu engum á óvart. Kastljós fjölmiðlanna höfðu beinst að þeim um skeið og þeir höfðu verið spurðir ítrekað hvort þeir ætluðu ekki að segja af sér. Undir sama kastljósi tilkynntu þeir svo afsögn sína og þjóðin horfði á heima í stofu.

Þórólfur og Guðmundur Árni völdu svipaðan vettvang fyrir afsagnarfundi sína. Þórólfur kaus Höfða sem er móttökuhús borgarstjórnar en Guðmundur Árni boðaði fréttamenn á sinn fund í Rúgbrauðsgerðina en þar voru ráðstefnu- og veislusalir ríkisins. Báðir hafa eflaust átt gleðilegri stundir í þessum húsakynnum.

Þegar yfirlýsingar þeirra eru bornar saman má sjá að báðir segja af sér án þess þó að telja að beinar gjörðir þeirra kalli á það. Þórólfur sagði það sitt mat að ákvörðun um afsögn væri best fyrir Reykjavíkurlistann og hann sjálfan og Guðmundur Árni sagðist vilja freista þess með afsögn sinni að Alþýðuflokkurinn fengi sanngjarna og hlutlæga umfjöllun. Hann sagðist ennfremur láta minni hagsmuni víkja fyrir meiri og að afsögnin bæri að án sakarefna eða þrýstings. Þórólfur sagðist vita að margir myndu verða ósáttir við ákvörðun hans. Hann lét þess einnig getið að ekkert nýtt hefði komið fram í málinu sem breyti mati hans á eigin hlut en það sé hins vegar meira að vöxtum en nokkurn hefði órað fyrir.

Báðir sögðu þeir af sér embættum vegna mála sem ekki tengdust þáverandi störfum þeirra. Borgarstjórinn vegna aðgerða eða aðgerðaleysis sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Olíufélagsins og félagsmálaráðherrann vegna embættisfærslna í heilbrigðisráðuneytinu en þar réð hann ríkjum áður en hann varð félagsmálaráðherra.

Það er líka athyglisvert að báðir gegndu þeir embættum sínum í skamman tíma. Guðmundur Árni var ráðherra í tæpa 17 mánuði og þegar Þórólfur lætur af embætti um mánaðamótin hefur hann verið borgarstjóri í 19 mánuði.

Hér var stuðst við fréttaskrif Morgunblaðsins frá því fyrir tíu árum.

Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur skipað Þórólf sem forstjóra Samgöngustofu og Guðmundur Árni er sendiherra, situr nú í Washington og af fréttum má ætla að hann verði fluttur til, gangi eftir að nýskipaður sendiherra, Geir H. Haarde taki við sendiráðinu vestra.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: