Gunnlaugur Ólafsson setti á blað:
„Guðmundur í Kerecis flutti ræðu á fundi Áfram Ísland á Selfossi. Þar talar hann á svipuðum nótum og flestir í „meistaradeildinni“. Ísland er best í heimi en Evrópa hnignar undan regluverki. Nýsköpun færist til USA og Asíu.
Hinn mikli skyndigróði síldarplansins sem Kerecis ævintýrið var, á að vera vegna sérstöðu Íslands. Þetta hefði ekki getað gerst innan ESB. Yfirlætið og yfirburðirnir eru afgerandi og algjörir. Augljóst mál.
Það þarf ekki flókna leit á netinu til að sjá að Kerecis fékk rúmar fjögur hundruð milljónir úr Fast Track to Innovation þróunarsjóði Evrópusambandsins. Lykilþátturinn vöruþróunin er það sem hlaut hinn veglega styrk.
Það er ekki mikið þakklæti i ræðunni að minnast ekki einu orði á stuðning Evrópusambandsins. Það má halda því fram með sanni að þessi verðmæta vöruþróun á Ísafirði hefði aldrei orðið að veruleika nema vegna stuðnings ESB við nýsköpuninni.“
