Samkvæmt mínum útreikningum nemur samanlagt tap Icelandair á starfstíma Boga um 34 milljörðum króna, eða um tveimur milljörðum á ári að meðaltali.
Jóhann Þorvarðarson skrifaði:
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ætti að velta því fyrir sér hvort kominn sé tími til að færa félaginu nýja forystu.
Stjórn Icelandair hefur í tvígang valið forstjóra með fjármálabakgrunn en takmarkaða reynslu og þekkingu á þeim sviðum sem skipta flugfélag mestu máli: markaðs-, leiðarskipulags- og mannauðsmál.

Forveri Boga, Björgólfur Jóhannsson, var forstjóri frá 2008 til 2018. Við starfslok hans gaf félagið út afkomuviðvörun og lækkaði rekstrarspá sína. Hann sagði sjálfur að umbreytingar innan fyrirtækisins hefðu ekki gengið eftir eins og skyldi og að brugðist hefði verið of seint við vandamálum. Mistök í markaðsmálum og breytingar á leiðarkerfi vógu þar þungt.
Björgólfur kom frá sjávarútveginum og var því ekki kunnáttumaður í flugrekstri. Þegar eftirmaður hans var valinn varð niðurstaðan aftur að stjórnandi með bakgrunn í fjármálum var valinn til forystu. Bogi var samverkamaður Björgólfs og bar því einnig ábyrgð á erfiðri stöðu félagsins undir lok stjórnartíðar Björgólfs. Á árunum 2017 til 2019 tapaði félagið 14 milljörðum króna. Bogi axlaði þó enga ábyrgð heldur var honum sparkað upp á við!
Það er ekki í sjálfu sér galli að hafa fjármálabakgrunn. Hins vegar vekur það spurningar þegar tveir forstjórar í röð hafa takmarkaða reynslu á málefnasviði sem skiptir flugfélag öllu máli.
Tíð Boga hefur einkennst af óeðlilega tíðum skipulagsbreytingum, breytingum á leiðarkerfi og endurteknum vinnudeilum við lykilstarfshópa, sem hafa fært honum óvinsældir. Á sama tíma hefur rekstur félagsins verið undir þrýstingi án þess að frammistaða Boga sé skoðuð af ráðandi öflum innan fyrirtækisins. Bogi hefur aftur á móti verið duglegur að losa sig við aðra lykilstjórnendur og er listinn yfir brottrekna svo langur að Bogi kærir sig eflaust ekki um að rifja hann upp.
Samkvæmt mínum útreikningum nemur samanlagt tap Icelandair á starfstíma Boga um 34 milljörðum króna, eða um tveimur milljörðum á ári að meðaltali. Eðlilegt er því að spyrja hvort tími sé kominn á forstjóra með annan bakgrunn og nýja sýn á rekstur Icelandair. Eftir áralangt tap er traust til núverandi forystu orðið hluti af vandamálinu.
Sagan hverfur ekki og hún fylgir þeim sem hafa stýrt félaginu. Stundum er nýr forstjóri ekki aðeins ráðinn til að hafa áhrif á framtíð fyrirtækisins, heldur einnig til að loka kafla fortíðarinnar og skapa ferskt andrúmsloft meðal starfsmanna.