- Advertisement -

Já, fjármálaráðherra; rétt skal vera rétt!

„Þannig væri verð hærra um sem nemur 58% á síld, 15% fyrir kolmuna og 124% fyrir makríl í Noregi.“

Vilhjálmur Birgisson.

Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

Jæja loksins kom að því en núna hafa stjórnvöld sannað það sem við í stéttarfélögunum höfum sagt um áratugaskeið að verð á uppsjávarafla til íslenskra sjómanna endurspeglar alls ekki hið raunverulega og rétta markaðsverð.

Það kom fram í máli fjármálaráðherra að skoðun hafi leitt í ljós að munurinn sem væri á milli aflaverðs hér á landi og í Noregi væri mjög mikill og mun meiri en hægt væri að skýra af mögulegum stærðar- eða gæðamun. Þannig væri verð hærra um sem nemur 58% á síld, 15% fyrir kolmuna og 124% fyrir makríl í Noregi. „Rétt skal vera rétt,“ sagði Daði Már fjármálaráðherra á blaðamannafundinum áðan.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…það er ekki bara verið að stela af sjómönnum…

Já sjómenn hafa í áratugi kallað eftir að rétt skuli vera rétt og hafa ítrekað bent á að verið sé að stela af sjómönnum gríðarlegum fjármunum í ljósi þess að margar útgerðir eru með veiðar og vinnslu á sömu hendinni og útgerðin getur því ákveðið fiskverðið sjálft.

Já nú kemur í ljós að verð á uppsjávarafla er 15% til 124% minna hér á landi heldur en það markaðsverð sem er í Noregi.

Mitt mat er að eftir að stjórnvöld hafa komist að þessari niðurstöðu, að verð á uppsjávarafla sé alls ekki að endurspegla rétt markaðsverð þá kalli það á að skipuð verði nefnd af hálfu Alþingis sem rannsaki hversu mikið er búið að stela af íslenskum sjómönnum á liðnum árum og áratugum í ljósi þessara staðreynda. Munum að það er ekki bara verið að stela af sjómönnum heldur einnig af sveitarfélögum sem verða af umtalsverðum útsvarstekjum þegar ekki er verið að greiða sjómönnum rétt markaðsverð.

Ég hef skrifað þó nokkuð oft um þetta en nú hafa stjórnvöld látið rannsaka þetta af óháðum aðila erlendis frá og þetta er niðurstaðan. Nú þarf að láta kné fylgja kviði og leiðrétta laun sjómanna sem hafa verið höfð af þeim með ólögmætum og óréttlátum hætti. Ég tek því undir orð fjármálaráðherra, rétt skal vera rétt. Og ég trúi ekki öðru en að ríkisstjórn sem kennir sig við félagshyggju, jöfnuð og réttlæti hjálpi sjómönnum að ná fram réttlæti í þessu máli.

Það er ekki nóg fyrir stjórnvöld að tryggja sig í gegnum löggjafavald sitt er lýtur að ríkissjóði og skilja sjómennina eftir áfram á kolröngu fiskverði. Ítreka því: Rétt skal vera rétt, líka gagnvart sjómönnum.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: