- Advertisement -

Kjósið erlenda banka frekar en íslenska

„Til samtakanna leitaði á dögunum félagsmaður sem lagt hafði inn nokkrar evrur á gjaldeyrisreikning í banka hér á landi. Skömmu síðar þurfti hann að nota evrurnar og tók þær út úr bankanum. Hugðist hann taka út sömu upphæð en í millitíðinni hafði gengi íslensku krónunnar lækkað og því var félagsmaðurinn krafinn um fjármagnstekjuskatt á gengishagnað. Gekk hann því út úr bankanum með færri evrur en hann hafði lagt inn í hann nokkrum vikum áður,“ þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna, ns.is.

Neytendasamtökin sendu fyrirspurn til bankans og ríkisskattstjóra sem voru sammála um að farið hefði verið að lögum.

„Neytendasamtökin beina þeim tilmælum til löggjafarvaldsins að bæta snarlega úr þessari gloppu í lögum. Að öðrum kosti, og þangað til að úr þessu er bætt, benda samtökin félagsmönnum á að nota ekki íslenska gjaldeyrisreikninga ætli þeir að geyma fé í erlendri mynt, heldur nota reikninga í erlendum bönkum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: