- Advertisement -

Lýsa yfir vantrausti á Kristjáni Þór

 „Sú síðasta í langri röð aðgerða og tillagna frá sjávarútvegsráðherra og opinberra aðila til þess að veikja smábátaútgerð á Íslandi. Við lítum á þetta útspil sem hefndaraðgerða af hálfu Kristjáns Þórs Júlíussonar vegna andstöðu okkar við kvótasetningu á grásleppu. Við í Sæljóni höfum lagt tillögur til lausnar á vandamálum varðandi meðafla við grásleppuveiðar, að gefa mönnum kost á að gera hlé á veiðum án dagaskerðingar ef um óeðlilegan meðafla er að ræða. Ráðherra hefur ítrekað hafnað þeim tillögum. Við í stjórn Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi, lýsum því yfir vantrausti á sjávarútvegsráðherra Íslands Kristján Þór Júlíusson og skorum á LS að gera slíkt hið sama,“ segir Jóhannes Simonsen formaður Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi.

Þetta kemur fram í frétt Skessuhorns.

Í fréttinni segir einnig: „Breytingar sem koma fram í þessum drögum eru svo íþyngjandi að þær geta leitt til þess að grásleppuveiðar í Faxaflóa og víðar leggjast af. Undirtónninn í þessum aðgerðum/drögum eru gríðarlegt og hert eftirlit, takmörkuð sóknargeta og hámarkslengd neta á hvern bát verði stytt um helming, verði 3.750 m í stað 7.500 m. Ef þessar tillögur hljóta brautargengi verður afkoma grásleppubáta svo léleg að fækka þarf í áhöfnum grásleppubáta, þannig að þeir verða í flestum tilfellum einungis einn maður.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: