Birgir Dýrfjörð skrifar:
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur kosið sér nýjan þingflokksformann Ólaf Adolfsson.
Ég veit lítið um þann mann annað en að hann er lyfsali og þar með þjálfaður í nákvæmni og vandvirkni, að auki veit ég að hann hefur verið mörg ár leiðandi í bæjastjórn Akraness.
Ég held að seta í sveitarstjórn sé besti skóli sem verðandi þingmenn geta fengið. Þar læra þeir að vera í nánu sambandi við kjósendur og þar læra þeir líka að tala embættismenn til skilnings á málum og þörfum sveitarfélaganna.
Þó ég sé örlagakrati, þá finnst mér ærin ástæða að óska Ólafi alls hins besta í starfi sínu sem formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksin.s
Ástæðan er fyrst og fremst sú að ég hef lengi haft vonda tilfinningu um þróun lýðræðis á Alþingi.
Síðasta Alþingi sýndi almenningi hvað fólk getur bilast og lagst lágt þegar það kastar frá sér allri sjálfsvirðingu og sogast inn í hópsefjun og stendur í biðröð til að flytja aftur og aftur og dag eftir dag sömu ræðuna.
Ég læt því eftir mér að vona að Ólafur sé ekki loddari heldur sé hann alvöru lýðræðissinni og alvöru maður og alvöru stjórnmálamaður íslenskri pólitík.
Staðreyndin er sú að í höndum ábyrgrar stjórnarandstöðu þá er lýðræðið afar þýðingarmikill og dýrmætur öryggisventill.
Þeim augum litið óka ég Ólafi Adolfssyni gæfu og gengis í nýju starfi sínu.“