- Advertisement -

Ólýsandi vonbrigði Þorsteins

Það væri óskandi að menn vönduðu betur málflutning sinn í þessum málum.

„Ábyrgð okkar þingmanna sem tökumst á við það starf og þá skuldbindingu að vinna að heill þjóðarinnar er mikil. Hún er ekki síst hvað mest í því hvernig við háttum störfum okkar og hvernig við háttum umræðu okkar og hvernig við háttum upplýsingagjöf okkar til þjóðarinnar um þau mál sem við erum að fást við hverju sinni,“ sagði Þorsteinn Víglundsson á Alþingi fyrr í dag. Þar vitnaði hann til orða sem hafa fallið vegna þriðja orkupakkans.

„Það veldur manni þess vegna ólýsanlegum vonbrigðum þegar maður horfir upp á þingmenn halda fram slíkum rangfærslum sem haldið hefur verið fram um það mál sem nú er til umræðu í þinginu um þriðja orkupakkann. Þegar umræðan er loks hafin kemur svo berlega í ljós hversu innstæðulausar fullyrðingarnar til þessa hafa verið. Við erum búin að sitja hér undir árásum af hálfu ákveðinna aðila og afla í samfélaginu um að þingmenn í þessum sal sitji að einhvers konar svikráðum við þjóðina með því að styðja þetta mál, að verið sé að brjóta gegn stjórnarskrá, verið sé að framselja auðlindir þjóðarinnar í hendur erlendra afla og svo fram eftir götunum. Svo kemur auðvitað á daginn þegar hinir sömu aðilar standa í pontu og halda efnislegar ræður um málið að það er ekki nokkur leið að rökstyðja þær fullyrðingar sem settar hafa verið fram,“ sagði þingmaðurinn.

„Það væri óskandi að menn vönduðu betur málflutning sinn í þessum málum. Það er algjörlega óþolandi sem þingmaður að sitja undir ásökunum um það að ganga á bak drengskaparheiti sínu við stjórnarskrá Íslands, að sitja hér að svikráðum við þjóðina með því að styðja við það mál sem þriðji orkupakkinn snýst um í öllum einfaldleika sínum, sem er neytendavernd fyrir almenning í landinu í orkumálum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: