- Advertisement -

Ótrúlega stoltur af því að tilheyra ríkisstjórninni

„Ég er ótrúlega stoltur af því að tilheyra þeirri ríkisstjórn sem er að klára lífskjarasamninginn með þessu frumvarpi og hinum tveimur frumvörpunum sem við greiddum atkvæði um áðan.“

Svo sagði Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra á einum síðasta degi Alþingis áður en þingmenn samþykktu hið langa jólafrí, sjálfum sér til handa. Þá var þingið að samþykkja frumvarp ráðherrans um almennar íbúðir.

„Hér erum við að fara að greiða atkvæði um mál sem tengist lífskjarasamningnum, mál um breytingar á almenna íbúðakerfinu, íbúðakerfi sem við ætlum að tryggja á næsta ári og að á næstu árum verði 600 nýjar íbúðir byggðar innan þessa kerfis,“ sagði Ásmundur sem var gagnrýndur illilega fyrir hversu seint hann lagði frumvarpið fram. Það var keyrt á leifturhraða í gegnum þingið.

Síðar sagði Ásmundur Einar:

„En það sem kemur líka í ljós í þinginu er að stjórnarandstaðan sýnir að henni hefði ekki verið treystandi til að ná lífskjarasamningnum í hús vegna þess að hún er ekki tilbúin að vinna málin af þeim gæðum og á þeim hraða sem er nauðsynlegur.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: