- Advertisement -

Patent-lausn fyrir Grindvíkinga

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Þegar logandi hraunið rann inn í Grindavík og hús brunnu, jörð rifnaði, lagnir fyrir rafmagn og vatn slitnuðu og djúpar gjár urðu utan við og undir vistarverum bæjarbúa. Þá sýndi sig að íslenska þjóðin er í raun ein fjölskylda.

Allir voru reiðubúnir að gera allt sem í þeirra valdi stóð til að  koma Grindvíkingum til hjálpar. Fólk gekk úr rúmum, lánaði auðar íbúið sínar og sumarbústaði. Ríkissjóður tók á sig gríðarlegar upphæðir og skuldbindindgar til að liðsinna þeim sem voru að missa eigur sínar, öll þjóðin var því samþykk á þeim dögum nöldraði engin.

Átakanlegasta áfallið var þó þegar jörðin brast og góður maður lét líf sitt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Til að gæta mannslífa hafa yfirvöld sett strangar reglur um viðveru fólks í bænum. 

Þær reglur hafa valdið því að nú finnst íbúum þeir ofverndaðir og ófrjálsir.

Nú er svo komið  að íslenska samfélagið liggur undir hótunum Grindvíkinga um kærur og kröfur um skaðabætur ef þessari gæslu þess linnir ekki.

Það hefur orðið stigmögnun í orðavali á lýsingu heimamanna á athæfi ríkisvaldsins, þeir líkja framkomu þess gegn sér skriflega þannig; að valdhafar troði tippinu í bréfalúgur heimafólksins. Síðan „dingla“ þeir bjöllunni svo hurðin sé opnuð til að þeir geti séð hvað þeim tókst að míga langt inn á ganginn.

Það er óþolandi að heimamenn þurfi að upplifa gæslu og umhyggju samfélagsins á þann niðurlægjandi hátt sem þeir lýsa hér.  Nóg er nú þjáning þeirra samt.

„Patend lausn“

Grindvíkingar hafa kjörið bæjarstjórn sem yfirvald í sinni heimabyggð.

Því er einföld lausn að halda fund í bæjarstjórn og samþykkja að hún taki alfarið á sína eigin ábyrgð yfirráð yfir umferð og athöfnum í bænum. Þannig má létta af bæjarbúum þeirri sáru tilfinningu að þeir séu ósjálfráðir og niðurlægðir og lítils metnir af yfirvöldum. 

Þurfi svona samþykkt samþykki annarra ætti það að vera létt verk.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: