- Advertisement -

Ríkisstjórn ríka fólksins lækkar fjármagnstekjuskattinn um 5,2 milljarða

Lífskjarasamningurinn virðist vera úlfur í sauðargæru.

Katrín Baldursdóttir skrifar:

Fimm þúsund og fimm hundruð milljónir. Já fimm þúsund og fimm hundruð milljónir. Eða 5,2 milljarðar. Það er sú upphæð sem fjármagnseigendur græða á nýja fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2020. Fjárlög 2019 segja að fjármagnstekjur skuli færa ríkissjóði 38 milljarða, en fjárlagafrumvarpið 2020 segir að fjármagnstekjur færi ríkissjóði 32,5 milljarða. Sem sagt fimm þúsund og fimm hundruð milljónum minna, eða 5,2 milljörðum. 14,5% minna. (sjá meðfylgjandi mynd). Já ríkisstjórnin gerir vel við fjármagnseigendur. Þetta er ríkisstjórn ríka fólksins.

Á sama tíma skreytir þessi ríkisstjórn sig með fjöðrum endurreistrar verkalýðshreyfingar. Fjaðrir sem heita lífskjarasamningur. En lífskjarasamningurinn virðist vera úlfur í sauðargæru miðað við þetta nýja fjárlagafrumvarp fyrir árið 2020. Kjarabæturnar sem þeir lægst launuðu áttu að fá og millistéttin á lægri töxtunum, hverfa með alls konar nýjum sköttum sem settir verða á almenning, lægri persónuafslætti og veggjöldum.

Það verður venjulegt fólk sem stritar myrkranna á milli, fólk á lágum launum og meðaltekjum, sem mun borga það sem upp á vantar frá fjármagnseigendum. Eða 5,2 milljarða.

Þetta er svo ofboðslega óréttlátt. Ekki síst í ljósi þess að fjármagnseigendur borga bara 22% skatt af fjármagnstekjunum sínum en þeir sem ná vart endum saman, og allt of margir alls ekki, borga hátt í 40% af sínum tekjum í skatta. Og hafa enga möguleika á að leggja fyrir svo þeir geti átt fjármuni til að borga 22% skatta.

Svona er Ísland í dag.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: