- Advertisement -

Ríkisstjórnin er stefnulaus í öllum málum

Eyjólfur Ármannsson, Flokki fólksins, var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu. Eftirfarandi frétt er unnin úr samtali Eyjólfs og Arnþrúðar:

Með þeim gríðarlega fjölda útlendinga sem hingað kemur er hreinlega verið að skipta um þjóð í landinu. Innflytjendamálin eru algjörlega stjórnlaus og ríkisstjórnin stefnulaus. Ef fólk gagnrýnir þetta þá er það kallað rasistar. Þetta segir Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins í viðtali Arnþrúðar Karlsdóttur í dag.

Eyjólfur segir að háskólamenntað fólk sé mikið til að fara úr landi á sama tíma sé fólk að koma hingað til lands að vinna láglaunastörf í ferðaþjónustu.

„Svo erum við að fá alla þessa hælisleitendur sem er orðinn algerlega stjórnlaus málaflokkur sem er gott dæmi um það hvað þessi ríkisstjórn er algerlega stefnulaus í öllum málum, sama hvort um sé að ræða verðbólgumálin, sjávarútvegsmálin, orkumálin og tala nú ekki um hælisleitendamálin.“

Hann segir frumvarp Jóns Gunnarssonar þáverandi dómsmálaráðherra hafi bara verið útvatnað plagg og það sýni sig best í því að eftir að það hafi orðið að lögum þá hafi ekkert breyst.

„Ég kom með breytingartillögu á því til þess að taka úr sambandi úrskurð kærunefndar útlendingamála hvað varðar hælisleitendur frá Venesúela sem eru í eðli sínu efnahagslegir flóttamenn en því var hafnað af stjórnarmeirihlutanum“

Hann bendir á að það sé þingið sem eigi að ráða á Íslandi en ekki úrskurðanefndir og fari málin eins og þau fóru í úrskurði kærunefndar útlendingamála varðandi Venesúela þá eigi Alþingi að breyta lögum á þann hátt að kærunefndin fari að lögum en það hafi ekki verið gert.

Gagnýnin hugsun sögð vera rasismi

„Ég heyrði í útvarpsfréttum að það væru hér 90.000 erlendir ríkisborgarar á Íslandi. Hér er verið að breyta Íslandi í grundvallar atriðum beint fyrir framan nefið á okkur og án þess að þjóðin sé spurð álits. Það má ekki ræða þetta og ef maður gerir það þá er maður stimplaður rasisti, við verðum einfaldlega að taka umræðu um þetta“segir Eyjólfur.

Aðspurður um hvort hann hafi kynnt sér hvað þingsályktunartillaga Katrínar Jakobsdóttur um hatursorðræðu gangi út á og hvernig þar séu skoðanir í ákveðnum málum flokkaðar sem hatursorðræða segir Eyjólfur:

„Þetta ríkisstjórnarsamstarf virðist ganga út á að Vinstri grænir séu við völd svo þeir geti dundað sér við mál sem þetta, sent alla í stjórnsýslunni á hatursorðræðunámsskeið. Út á þetta gengur þetta ríkisstjórnarsamstarf. Katrín getur þá verið í þessum dyggðarskreytingarmálum sínum og verið forsætisráðherra og stutt stjórnarmeirihlutann,“ segir Eyjólfur.

Fréttin er fengin af utvarpsaga.is.

Hlusta má á ítarlegt viðtal við Eyjólf Ármannsson alþingismann Flokks Fólksins í spilaranum hér að neðan.

https://utvarpsaga.is/eyjolfur-armannsson-thad-er-verid-ad-skipta-um-thjod-i-landinu/?fbclid=IwAR0V_6LFsVmaUTycKobZAl3pE7FyVyftTDSPVLFy8Zal0ijm7CuvHSNuxCU


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: