- Advertisement -

Samkomulag um tvísköttun

Það er ekkert svar heldur útúrsnúningur.

Vigdís Hauksdóttir:

„Hlustaði á fráfarandi formann samgöngunefndar á Bylgjunni í morgun
Hann túlkaði nýjan samgöngusamning sem liggur enn óundirritaður með allt öðrum hætti en kynnt var fyrir sveitarstjórnarmönnum á höfuðborgarsvæðinu s.l. miðvikudag,

Hann kannaðist lítið við fjármögnunarleiðirnar sem komið hafa fram í fréttum og spurði hvaðan þær upplýsingar væru komnar – greinilegt er að líklega samgöngumálaráðherra hafi farið offari án samþykktar X-D, eða þá hitt að stjórnarflokkarnir þola ekki umræðuna/álagið sem skapaðist og eru komnir á flótta frá samkomulaginu.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Þegar svona félög eru stofnuð lifa þau sjálfstæðu lífi.

Mér finnst alvarlegast í þessum samning að fara á grískuleiðina – þ.e. að stofna nýtt félag (ohf,bs) en nú með splunku nýrri aðferð, þ.e. félag sem er í eigu ríkisins og sveitarfélaganna. Þegar svona félög eru stofnuð lifa þau sjálfstæðu lífi og eftirlit kjörinna fulltrúa aftengt og verða sjálfkrafa „fylgihnettir“ í A-hluta sveitarfélaga og koma aðeins fram í samstæðureikningsskilum.
Sama birting er hjá ríkinu.

Við þekkjum öll svona félög – eins og t.d. Nýja Landspítalann, Isavia, Íslandspóst, RÚV og Orkuveituna.
Þau lifa sjálfstæðu lífi og stjórnendur þeirra geta sólundað miklu fjármagni – en ábyrgðin er alltaf hins opinbera – þ.e. hjá skattgreiðendum.

Allt Keldnalandið á að renna inn í þetta félag og er það metið á 15 milljarða – fáist það verð ekki fyrir landið – leggur ríkið til það sem uppá vantar. Fáist meira verð fyrir landið rennur upphæðin líka inn í félagið.

  • Tafagjöld/vegatollar eru áætlaðir um 60 milljarðar
  • Ríkið á að skila um 50 milljörðum
  • Sveitarfélögin eiga að skila um 15 milljörðum

Sláandi er að ekki er gert ráð fyrir Sundabraut inn í þessu samkomulagi og spurði ég sérstaklega út í það – svarið var – jú sko hún er ekki með því hún á að fara í einkaframkvæmd – það er ekkert svar heldur útúrsnúningur.
Að lokum – þessi samningur er ekkert annað en tvísköttun fyrir fólkið í landinu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: