- Advertisement -

Sjálfsmark Guðrúnar og Sjálfstæðisflokksins

„Þetta er þraut sem er mjög erfitt að ráða fram úr. Sjáum bara Íhaldsflokkinn í Bretland sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur oft litið til sem fyrirmyndar. Þetta er klípa.“

Egill Helgason.

Guðrún Hafsteinsdóttir boðaði til áríðandi fundar um breytta stefnu Sjálfstæðisflokksins. Fundarfólk átti von á formaðurinn kynnti hvernig hún vill að fylgislekinn yrði stöðvaður. Lét í það skína að hún væri með tappann sem þyrfti.

Nokkur hópur fólks mætti á fundinn. Engir stólar, sem sagt standandi fundur. Klukkan sló. Í nærri korter beið fundarfólk. Loks mætti fyrrum varaformaður flokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og hélt stutta en ágæta ræðu.

Hún sagði meðal annars að Guðrún formaður sé góð manneskja og vinkona sín. Þórdís Kolbrún sagði meðal annars að flokkurinn myndi sjá til þess að Ísland verði áfram land tækifæranna.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Þórdís Kolbrún sagði meðal annars að Guðrún formaður sé góð manneskja og vinkona sín.

Þórdís þakkaði fyrir sig og kynnti inn formanninn, Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Eðlilega lét hún ekki vel af störfum ríkisstjórnarinnar. „Frasa ríkisstjórn Kristrúnar, Þorgerðar og Ingu,“ sagði formaðurinn. Og; „…Vinstri stjórn Kristrúnar Frostadóttur.“

Talandi um frasa var GH í frasa stuði. Sem dæmi sagði hún: „Samfylking bregst aldrei vondum málstað.“ Þrátt fyrir allt og allt, fylgishrun og flokkadrætti í Sjálfstæðisflokknum sagði GH að bjartir tímar séu framundan.

Guðrún sagði að Sjálfstæðisflokkurinn myndi koma sterkur inn í byggðaskosningarnar: „Mikið hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu í vor.“

Guðrún sagði að nú væri lag að sækja í gamlar stefnur flokksins, fara jafnvel áratugi til baka. Í gömlu góðu grunngildin. Hver sem þau svo sem eru.

Þegar hér var komið var leikur West Ham og Burnley að byrja svo ég slökkti á streyminu frá fundinum og horfði á leikinn. Sem fór vel.

Óðinn Jónsson og Egill Helgason.
„…vegna skilningsskorts aðkomudýranna í Stjórnarráðinu.“

Egill Helgason skrifaði: „Sjálfstæðisflokkurinn er í sama vanda og hefðbundnir hægri flokkar víða í Evrópu. Hann veit ekki hvernig hann á að bregðast við pópúlískum flokki sem er kominn upp hægra megin við hann og yfirtrompar hann í mörgum málum. Á Sjálfstæðisflokkurinn að elta Miðflokkinn – og hverju skilar það? Eða að fara í aðra átt? En þar er hluti af frjálslynda sjálfstæðisfólkinu komið í Viðreisn. Þetta er þraut sem er mjög erfitt að ráða fram úr. Sjáum bara Íhaldsflokkinn í Bretland sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur oft litið til sem fyrirmyndar. Þetta er klípa.“

Óðinn Jónsson skrifaði athugasemd við skrif Egils:

„Sjálfstæðisflokkurinn er þrátt fyrir allt með miklu meiri ítök en mælast á Alþingi eða í sveitarstjórnum. Hið raunverulega vald felst í því þéttriðna hagsmunaneti sem flokkurinn hefur ofið í atvinnu- og fjármálalífi landsins frá stofnun hans. En rétt er að miðað við allt þetta áhrifavald er flokkurinn undarlega höfuðlaus um þessar mundir og vandræðalegur í framgöngu. Þessi venjulegi belgingur og mikla sjálfstraust sem flokkurinn treysti á í hverjum slag er á undraskömmum tíma fuðrað upp i fundarsal Alþingis og í spjallþáttum fjölmiðlanna. En valdið liggur þarna úti og minnir stundum á sig með væli um að allt sé að fara til helvítis vegna skilningsskorts aðkomudýranna í Stjórnarráðinu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: