- Advertisement -

Skólaganga fjölda barna er í uppnámi

Fólk er sent frá Pontíusi til Heródesar í tilgangsleysi í stað þess að fá hjálp strax.

„Eins og þessum málum er háttað í dag þurfa börn og fullorðið fólk með geðsjúkdóma, sem þarf á bráðaþjónustu að halda, tilvísun frá heilsugæslunni. Og þar er biðin oft löng. Fólk þarf jafnvel að tala við símsvara sem gefur jafnvel villandi möguleika. Fólk er sent frá Pontíusi til Heródesar í tilgangsleysi í stað þess að fá hjálp strax,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson Flokki fólksins.

„1.193 börn um allt land bíða eftir greiningu eða meðferð við geðrænum og sálrænum vanda. Fjölmennastur er biðlistinn á Þroska- og hegðunarstöð þar sem 584 börn bíða greiningar. 107 börn bíða eftir greiningu og meðferð á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL, og níu börn eru á biðlista eftir innlögn á deildina. Við erum að láta börn með geðræn vandamál bíða, ekki bara mánuðum saman heldur jafnvel árum saman. Og engin er aðstoðin fyrir börn sem þurfa að búa hjá fólki sem býr við geðræna sjúkdóma. Þar er líka pottur brotinn.

Og hverjar eru afleiðingarnar fyrir viðkomandi börn? Skólaganga þeirra er í uppnámi, framtíð þeirra er í uppnámi, framtíð fjölskyldunnar er í uppnámi. Það er hægt að koma í veg fyrir þetta með því að sjá til þess að börn séu ekki á biðlistum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: