- Advertisement -

Sólveig Anna vill hitta ráðherra strax – hótar hörðum aðgerðum að óbreyttu

Það ástand sem ríkissáttasemjari hefur skapað með framferði sínu er óþolandi. Við það verður ekki unað.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur skrifað vinnumálaráðherranum, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, bréf, þar sem hún óskar eftir að fá að hitta ráðherrann strax í fyrramálið:

„Þrátt fyrir augljósa lagalega annmarka, skýrar vísbendingar um hlutdrægni, stórkostlega skert traust verkalýðshreyfingarinnar á embætti ríkissáttasemjara og fjölmargar áskoranir um að embættið dragi svonefnda miðlunartillögu sína til baka hefur embættið ekki gert það, heldur þvert á móti aukið á forherðingu sína. Kom það berlega í ljós síðastliðinn föstudag þegar embættið lét Héraðsdóm Reykjavíkur birta Eflingu fyrirkall vegna dómsmáls þar sem krafist er afhendingar á viðkvæmum persónuupplýsingum Eflingarfélaga, án þess að fyrir slíkri afhendingu séu lagaheimildir svo sem félagið hefur lýst ítarlega í samskiptum við embættið sem félagið hefur birt opinberlega.

Í ljósi pólitískrar og stjórnsýslulegrar ábyrgðar þinnar á framlagningu ríkissáttasemjara á svokallaðri miðlunartillögu, svo og á tilhæfulausri kröfu embættisins um afhendingu gagna úr félagaskrá Eflingar, geri ég kröfu um að fá áheyrn þína án tafar.

Ég legg þunga áherslu á að þú eigir fund með mér…

Ég óska því eftir að þú takir á móti mér að morgni mánudagsins næstkomandi 30. janúar. Ég legg þunga áherslu á að þú eigir fund með mér eigi síðar en á þeim tíma, þar sem seinna þann dag mun fara fram fyrirtaka í fyrrnefndu dómsmáli sem ríkissáttasemjari hefur höfðað og um kvöldið verða tilkynnt úrslit atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun Eflingarfélaga hjá Íslandshótelum.

Ég undirstrika við þig að um er að ræða grafalvarlegt fordæmisgefandi mál sem snýr að lögmæti stofnana aðila vinnumarkaðarins, grundvallarréttindum vinnandi fólks og því trausti sem verkafólki verður unnt að bera til opinbers ramma vinnumarkaðsmála á Íslandi til framtíðar. Ég bið þig að vanmeta ekki þann þunga sem Efling – stéttarfélag mun fyrir sitt leyti setja í viðbrögð vegna þessa máls og eftir atvikum beina að þeim stofnunum hins opinbera sem á því bera ábyrgð. Því höfða ég til ábyrgðar þinnar sem ráðherra vinnumarkaðsmála að verða við ósk minni um fund án vífilengja.“

Ég vona sannarlega að ráðherra verði við kröfu minni. Það ástand sem ríkissáttasemjari hefur skapað með framferði sínu er óþolandi. Við það verður ekki unað.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: