- Advertisement -

Stöðugur taprekstur hjá vinstri flokkum

Stjórnmál Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bentu á, á síðasta fundi borgarstjórnar, að rekstur borgarinnar, það er A-hluta hennar, borgarsjóðs, hafi verið neikvæður í tíð vinstri flokkanna. „Þegar rekstur A-hluta er skoðaður frá árinu 2002 má sjá að í tíð vinstri meirihluta 2002-2006 er taprekstur öll árin. Árin 2007-2010 er Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta og þá er jákvæð afkoma öll árin. Vinstri meirihluti tekur svo við vorið 2010 og eftir það er aftur taprekstur á A-hluta að frátöldu árinu 2013 sem verður að segjast að sé undantekningin sem sannar þá reglu að í tíð vinstri meirihluta við stjórn Reykjavíkurborgar er taprekstur á A-hluta. Samt er útsvar Reykjavíkurborgar í hámarki öfugt við nágrannasveitarfélögin sem flest hafa dregið úr álögum á íbúa sína.“

Á borgarstjórnarfundinum var rætt um ársreikning ársins 2014. Hann sýnir 2,8 milljarða króna tap A-hluta Reykjavíkurborgar, sem er öll meginstarfsemi Reykjavíkurborgar. „Í skýrslu Fjármálaskrifstofu borgarinnar segir um þennan taprekstur að mikilvægt sé að bregðast við. Undir það taka borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins með tillögu sinni um að farið verði í rekstrarhagræðingu og í framhaldi af árangri í því verði farið í lækkun útsvars í áföngum. Í skýrslu Fjármálaskrifstofu segir einnig um veltufé frá rekstri sem er einungis fimm prósent að lágmarkið vegna skuldastöðu A-hluta borgarinnar sé níu prósent. Þetta eru þung viðvörunarorð til Pírata, VG, Samfylkingar og Bjartrar framtíðar sem skipa meirihlutann,“ segir í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: