- Advertisement -

Stóralvarlegt mál að þessi klíka skuli hafa drottnandi tök á íslensku samfélagi

Gunnar Smári skrifar:

Morgunblaðið, útgerðin og Sjálfstæðisflokkurinn halda ekki bara fram föllnum kenningum í hagfræði, afneita þekkingu og lærdómi í þeirri grein, heldur afneita þessi fyrirbrigði þekkingu og vísindum almennt og yfirleitt, eru úr sömu skúffunni og Trump, Bolsonaro og slíkir hugsuðir auðvaldsins. Það er stóralvarlegt mál að þessi klíka skuli hafa drottnandi tök á íslensku samfélagi.

Þetta sést ágætlega í Staksteinum dagsins, sem gefa ágætt innlit inn í þennan hugarheim heimsku og fásinnu. Ég birti þá hér fyrir áhugafólk um pólitík, mannfræði og sálfræði og þau sem hafa alltaf jafn gaman af skringilegu fólki:

Staksteinar
Vinabæir taki á málinu strax

Það er von að Wuhan-veiran setji menn í uppnám hvenær sem hún er nefnd. Seinast komst í hámæli að Anthony Fauci, æðsti maður bandarískra sóttvarna, hefði í mörg ár látið dæla ógrynni fjár í rannsóknarstofuna frægu í Wuhan!

Það þótti mörgum grunsamlegt og sögðu nú enn erfiðara en áður að treysta áróðurstilburðum Heilbrigðisstofnunar Sþ um að Kína hefði hvergi komið nærri upphafi faraldursins.

En stofnunin hefur í samráði við Wuhan-mannskapinn ríghaldið í leðurblökukenninguna! Leðurblökunni er kennt um að hafa upp á eigin spýtur sett veröldina á hliðina og borið ábyrgð á dauða milljóna manna! Kenningin um leðurblökuna þykir nægjanlega biluð til að hægt sé að fá fjöldann til að trúa henni.

Á hverju einasta hausti er gamla góða flensan sögð leggja upp frá Kína án atbeina leðurblökunnar. Hundruð milljóna veikjast og milljónatugir veikburða deyja. Enginn hefur þó stöðu grunaðs eftir áratuga árásir. Ekki einu sinni leðurblaka.

Fauciar um allan heim virðast sætta sig við að stundvísasta veira sögunnar mæti í vesturhluta heims hvert haust með afleitum afleiðingum.

Kannski er kominn tími til að þeir ræði þetta mál í bæjarstjórn Kópavogs. Eða er það rangminni að Wuhanborg hafi verið vinabær Kópavogs í tæpa tvo áratugi?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: