- Advertisement -

Það er ekkert annað en lygi. Hrein og klár lygi

Facebook:

Stefán Bogi Sveinsson skrifaði:

Það er býsna erfitt að segja hvað það er sem stendur upp úr varðandi tillögu ríkisstjórnarinnar að samgönguáætlun næstu 15 árin. Hvort það er metnaðarleysið, hroðvirknin, virðingarleysið, níðingsskapurinn eða lygarnar sem umfram annað einkenna gjörðir þess fólk sem stóð gleiðbrosandi og kynnti þessi ósköp í dag.

– Þau hæla sér af því að áætlunin sé fullfjármögnuð. Það er ekki mikið mál að fjármagna það sem andskotann ekkert er! Það var löngu vitað að það er þörf á stórátaki í uppbyggingu vegakerfisins, gerð ganga og brúa annarra dýrra framkvæmda. Það á ekki að hæla sér af því að velja ódýrasta kostinn og klappa sér svo á bakið fyrir að hafa nú fjármagnað hann. Verkefnið var og er að fjármagna það sem þarf að gera, ekki það sem er ódýrast að gera, og þar skilar þessi ríkisstjórn auðu.

Tvö til þrjú! Hvað þýðir það?

– Það er augljóst mál að það er ekki verið að fara að bora Fljótagöng árið 2027. Það er ekkert annað en lygi. Hrein og klár lygi. Það er eftir öll hönnun og skipulagsvinna, umhverfismat, útboð innan EES og Drottinn veit hvað. Þessu verður ekki lokið þannig að framkvæmdir geti hafist innan tveggja ára. Það mun hins vegar koma sér vel fyrir þennan ráðherra að geta tekið þá peninga sem í gangagerðina eru ætlaðir það ár og fært þá yfir í verkefni í sínu kjördæmi þegar nær dregur kosningum. Fylgist spennt með því.

– „Fjarðagöng“ eru ekki einu sinni næst í röðinni á eftir Fljótagöngum í þessari áætlun. Þau eru númer tvö til þrjú. Tvö til þrjú! Hvað þýðir það? Jú að þegar nær dregur kosningum þarf að ákveða hvor verða nr. tvö og hvor nr. þrjú. Ef ráðherra kærði sig ekki um að setja göng á Austurlandi í annað sæti í áætluninni núna, hverjar eru líkurnar á að það gerist þegar hann verður að berjast fyrir þingsæti sínu? Og það í því kjördæmi þar sem erfiðast er að tryggja sig inn á þing vegna færri kjördæmakjörinna þingmanna en í öðrum kjördæmum. Enn og aftur, fylgist spennt með því.

– Með því að kollvarpa gildandi forgangsröðun í jarðgangagerð er verið að kasta óheyrilega mikilli vinnu og fjármunum á glæ. Vinnu Vegagerðarinnar, skipulagsvinnu sveitarfélaganna. Hundruð milljóna króna sem nú nýtast í það minnsta ekki í bráð og hætt við að ónýtist algjörlega eftir því sem tíminn líður. Þetta er ótrúlegt virðingarleysi við vinnu fjölda fólks sem hefur lagt tíma og orku í verkefnið og í raun við okkur öll sem höfum greitt fyrir þessa vinnu. Þá er ég ekki einu sinni byrjaður á að tala um hversu ömurlega léleg vinnubrögð þetta eru ef fólk ætlar sér að ná einhverjum árangri í verkefnum sínum.

Í versta falli af beinum fjandskap.

– Afstaða þessarar ríkisstjórnar til Seyðisfjarðar markast í besta falli af kuldalegu afskiptaleysi. Í versta falli af beinum fjandskap. Undanfarin ár hefur hvert áfallið rekið þar annað. Sumt stendur í beinu samhengi við aðgerðir og aðgerðaleysi stjórnvalda. Þar á þessi ríkisstjórn ekki ein hlut að máli, en hefur sannarlega ekkert gert til að styðja við Seyðfirðinga í þessum áföllum. Það að leggja fram samgönguáætlun sem gerir í rauninni ekki ráð fyrir að bæta stöðu Seyðfirðinga nokkuð í samgöngumálum í 12-15 ár, og þá með því að færa þeim þau göng sem þeir báðu ekki um, er ekki jákvætt innlegg í stöðuna svo vægt sé til orða tekið.

– Það er svolítið merkilegt að lesa að mögulegt laxeldi í Mjófirði sé eitt af því sem geri að verkum að það verði að bora göng þangað sem fyrst! Er verið að senda Seyðfirðingum einhver skilaboð varðandi afstöðu þeirra til laxeldis í Seyðisfirði?

Það hefur jafnan verið spunameisturum hverrar ríkisstjórnar mikið kappsmál að reyna að koma þóknanlegu gælunafni á sína stjórn (sbr. „Valkyrjustjórnin“). En það bregst sjaldan að stjórnirnar fara að ganga undir öðru nafni, sem þær vinna sér inn með einum eða öðrum hætti. Því miður er svo komið að mér kemur aðeins eitt nafn í hug á þessa ríkisstjórn.

Ógnarstjórnin.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: