Stjórnsýsla Ragnar Önundarson skrifaði:

„Orkuveita Rvíkur er veitustofnun sem þjónar öllu stór-Reykjvíkursvæðinu og fleiri svæðum. Skattlagning hennar á íbúana, sjálftakan gegnum verðið, lendir því á íbúum utan Rvk og dregur borginni fé þeirra. Þetta er hugsanlega ólöglegt og að minnsta kosti ósiðlegt. OR er einkasala með „fé án hirðis“ sem alla pólitíkusa dreymir um að komast í. „Veitur“ (e. utilities) áttu að þjóna fólki með nauðsynjar, vatn, hita, rafmagn, frárennsli, í þeim tilvikum að viðskiptavinur varð að kaupa og m.a.s. á uppsettu verði. Ljósleiðarinn hefur bæst við. Þar er reyndar „tvíkeppni“ sem skilar notendum engu. Hugsjónin um „veitur“ er löngu gleymd og heimilin borga bara, skilningsvana og varnarlaus.“