- Advertisement -

Þingflokksformaður Viðreisnar: Styður ráðherrann stjórnarsáttmálann?

 

SÁA HKF„En ráðherrann situr í þínu umboði… nýtur hún trausts,“ skrifar Hrannar Björn Arnarson, á Facebooksíðu Hönnu Katrínar Friðriksson, þingflokksformanns Viðreisnar, eins þriggja stjórnarflokkanna.

Hanna Katrín svarar Hrannari Birni: „Í mínum huga er áhugaverðari spurning hvort hún styðji stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.“

Upphafið er skrif Hönnu Katrínar, en hún skrifaði: „Það er vitað að kynbundinn launamunur er raunverulegur. Það er hlutverk okkar þingmanna að gera það sem við getum að útrýma því óréttlæti. Þess vegna er ótækt að dómsmálaráðherra haldi því fram að kynbundinn launamunur sé ekki til, heldur sé ástæða launamunar að konur verji meiri tima með börnum sínum.
Það er árið 2017 og konur og karlar eiga að fá borguð sömu laun fyrir sömu vinnu. Þetta er ekkert til að rífast um.“

 

Vegna þessa skrifaði Hrannar Björn: „Allt satt og rétt sem þú segir… ekki síst það að „ótækt“ sé að dómsmálaráðherra haldi því fram að launamunur sé ekki til staðar. En ráðherrann situr í þínu umboði… nýtur hún trausts?“

Og svaraði var, sem fyrr segir: „Í mínum huga er áhugaverðari spurning hvort hún styðji stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: