- Advertisement -

Þingmenn fórna skoðunum sínum í von um ráðherraembætti úr lófa Bjarna

Tilvitnanirnar, sem eru innan gæsalappa í greininni, eru sóttar í grein Styrmis Gunnarssonar í Mogganun í dag. Spurningar og aðrar athugasemdir eru Miðjunnar og er allt sett inn eftir á.

Þriðji orkupakkinn mun fara nær því að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn en nokkuð mál annað. Sýnilegt er að margir þingmanna flokksins hafa kokgleypt fyrri skoðanir sínar og gengið til liðs við ráðherrasveitina. Skoðanir sem þeir opinberuðu ítrekað. Hvað veldur þessum sinnaskiptum?

„Ein ástæðan fyr­ir því er sú að holl­usta við for­ingja hvers tíma hef­ur alltaf verið mik­il í flokkn­um og mik­il­væg í að halda svo breiðum flokki með ólík sjón­ar­mið inn­an­borðs sam­an.“

Er það allt? Liggur fleira að baki?

Þú gætir haft áhuga á þessum
Styrmir Gunnarsson:
„Önnur ástæða gæti verið sú, að þeir hinir sömu hafi augastað á ráðherra­embætti, sem gæti verið laust og vilji ekki eyðileggja mögu­leika sína á því að koma þar til greina.“

„Önnur ástæða gæti verið sú, að þeir hinir sömu hafi augastað á ráðherra­embætti, sem gæti verið laust og vilji ekki eyðileggja mögu­leika sína á því að koma þar til greina.“

En gerist svona?

„Allt er þetta skilj­an­legt. Slík­ur sveigj­an­leiki er nauðsyn­leg­ur þátt­ur í stjórn­mála­starfi og er verjanlegur, þegar dæg­ur­mál eru á ferð. En hann á ekki við, þegar um grund­vall­ar­mál sjálf­stæðrar þjóðar er að ræða.“

Svo skrifar Styrmir: „Ætla hefði mátt að Sjálf­stæðis­flokk­ur og Fram­sókn­ar­flokk­ur hefðu nýtt aðstöðu sína til að draga aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka með form­leg­um hætti. Þeir heykt­ust á því, þegar þeir höfðu aðstöðu til.

Og nú er enn vegið í sama knérunn í full­veld­is­mál­um með því að opna dyrn­ar fyr­ir Evr­ópu­sam­bandið til þess að ná tang­ar­haldi á einni helztu auðlind íslenzku þjóðar­inn­ar.“

Bjarni Benediktsson hefur notið þess að; „…holl­usta við for­ingja hvers tíma hef­ur alltaf verið mik­il í flokkn­um og mik­il­væg í að halda svo breiðum flokki með ólík sjón­ar­mið inn­an­borðs sam­an.“

Ekki fer á milli mála að meira en gjá er á milli almennra flokksmanna og þingmanna.

„Virðing­ar­leysið gagn­vart eig­in flokks­mönn­um og kjós­end­um er um­hugs­un­ar­efni. Samþykkt­ir lands­fund­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins eru hafðar að vett­ugi með út­úr­snún­ing­um og „túlk­un­um“. Ábend­ing­ar um að æski­legt væri að ræða Orkupakka 3 frá báðum sjón­ar­horn­um á vett­vangi Sjálf­stæðis­flokks eru ekki tald­ar þess virði að svara þeim.“

Og afleiðingarnar, hverjar eru þær innan Sjálfstæðisflokksins?

„Hinn til­finn­inga­legi þátt­ur þessa máls er hættu­leg­ur. Þegar póli­tísk­ir sam­herj­ar deila sín í milli um grund­vall­ar­mál af þessu tagi verða til­finn­ing­ar sterk­ar á báða bóga. Reynsl­an sýn­ir að hark­an og jafn­vel illsk­an þeirra í milli verður meiri og erfiðari en þegar deilt er við póli­tíska and­stæðinga. Þing­menn Sjálf­stæðis­flokks­ins ættu að hafa þetta í huga, þegar þeir tala til flokks­systkina, sem eru annarr­ar skoðunar en þeir um þessi mál. Það kem­ur dag­ur eft­ir þenn­an dag.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: