- Advertisement -

Þorsteinn snúinn aftur til eigin fortíðar

Áður en það gerist er áróður eins og sá sem Þorsteinn setur fram, illalyktandi prump.

„Forsendur kjarasamninga eru brostnar,“ segir ráðherrann fyrrverandi, Þorsteinn Víglundsson, sem er aftur orðinn forstjóri. Eins á Þorsteinn eftirminnilega fortíð í Borgartúni 35. Húsi þrýstihópanna. Þorsteinn hefur reimt á sig gömlu skóna. Hann berst enn gegn launafólki. „ Við erum stödd í einu mesta samdráttarskeiði frá upphafi mælinga. Gengi krónunnar hefur fallið um fimmtung á einu ári, atvinnuleysi stefnir í 10 prósent og verðbólgan er komin af stað á ný. Ljóst er að veturinn verður harður,“ skrifar hann í Fréttablað dagsins. Það er eflaust rétt.

„Innistæðulausar launahækkanir nú munu aðeins auka atvinnuleysi og verðbólgu. Það þarf að leita annarra leiða. Gott samstarf á vinnumarkaði hefur ekki verið mikilvægara um árabil. Það er áhyggjuefni að við þessar kringumstæður virðist forysta verkalýðshreyfingarinnar ætla að stinga höfðinu í sandinn,“ skrifar gamli baráttumaðurinn úr Borgartúni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Að eina leiðin sé að þrengja að öllu launafólki er ólíklegt til árangurs. Margmilljóna- og milljónakarlarnir verða að ganga á undan hinu almenna launafólki. Sýna skýr fordæmi. Áður en það gerist er áróður eins og sá sem Þorsteinn setur fram, illalyktandi prump.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: