Stjórnmál: Sigurjón Þórðarson skrifar:
Það hefur verið æði óþægilegt að fylgjast með málflutningi talsmanns Sjálfstæðisflokksins í málefnum barna, m.a. upphrópunum um; upplausn, óstöðvandi ofbeldi, fíkniefnneyslu, dauða og að stúlkur og börn af erlendum uppruna séu í auknum mæli að beita ofbeldi.
Það virðist vera vitnað til skýrslu frá því í sumar um; „Áætlun um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna…“
Vissulega hefði mátt bæta framsetningu ágætrar skýrslu og að ályktanir skýrsluhöfunda hefðu skýrari skírskotun í gögnin. Það hefði einnig verið áhugavert að fá nánari upplýsingar um hvort munur væri á tíðini ofbeldis Íslenskra barna og þeirra sem hafa evrópskt ríkisfang. Breytingarnar sem vísað er til í auknu ofbeldi erlendra barna verða vart skýrðar með fjölgun barna með erlent ríkisfang.
Hvað sem því líður þá segir skýrslan eftirfarandi:
Öryggistilfinning barna er sterk.
99,5% barna á Íslandi 10 til 17 ára eru ekki grunuð um ofbeldi.
Af þeim 0,5 % sem eru grunuð þá er fimmtungurinn grunaður um alvarlegra ofbeldi eða 0.1%.
Hlutfall barna sem grunað er um ofbeldi er svipað en það var árið 2007 en hærra en það var árið 2014.
Það er vafasamt að tala um mikla ofbeldisaukningu meðal stúlkna eða barna með erlent ríkisfang, án þess að skoða það sérstaklega. Málin eru fá og mikill breytileiki á milli ára.
Þetta er málaflokkur sem þarf að sinna og ræða af alvöru og út frá vönduðum og eins samræmdum gögnum eins og kostur er.
Gerum Ísland betra með vandaðri umræðu um málefni barna og ábyrgum aðgerðum.