- Advertisement -

Utanríkisráðherra Íslands lætur eins og þetta sé ekki að eiga sér stað

Sólveig Anna Jónsdóttir:

„Niður með siðmenninguna, upp með sadismann er slagorð vorra daga. Hræðilegt er að upplifa það.“

Stjórnmál Í helgarútgáfu Morgunblaðsins er grein eftir utanríkisráðherra Íslands, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur. Minnist hún á þjáningar fólksins á Gaza sem að ísraelski herinn murkar lífið úr? Nei, það gerir hún svo sannarlega ekki. Hún hefur engan áhuga á þeim börnum, konum og mönnum sem að myrt eru þar. Hún hvorki sér þau né heyrir. Enda vinnur hún við að senda þau skilaboð til Bandarikjanna nótt sem nýtan dag að Ísland hafi ekki sjálfstæða utanríkisstefnu, sé aðeins leppur bandarískra stjórnvalda. Ekkert annað skiptir máli. Þjóðarmorð framið á fólki sem hefur enga undakomuleið, endalausar fregnir af myrtum börnum, börn að svelta í hel, börn að deyja vegna þess að sprengjur framleiddar í Bandaríkjunum og Þýskalandi hafa sprengt gat á höfuð þeirra og ekkert er hægt að gera vegna þess að ísraelski herinn hefur sprengt næstum alla spítala og þeir sem eftir standa geta ekki starfað vegna þess að ísraelsk stjórnvöld, með stuðningi Bandaríkjanna og sameinaðra evrópskara valdasjúkra siðvillinga, koma í veg fyrir að hægt sé að koma sjúkragögnum inn á Gaza; ekkert af þessu skiptir Þórdísi Kolbrúnu neinu máli.

Utanríkisráðherra Íslands lætur einfaldlega eins og þetta sé ekki að eiga sér stað.

Ástandið sem að við upplifum er svo sjúkt að það er varla hægt að koma að því orðum. Fólki er slátrað í beinni útsendingu á hverjum degi mánuðum saman. Og ekkert er gert til að stöðva glæpinn. Þvert á móti er allt gert til að hægt sé að halda honum áfram.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við erum stödd í hruni siðmenningarinnar. Og valdastétt okkar tekur markvissan þátt í því að sjá til að siðmenningin hrynji sem hraðast og með sem skelfilegustum afleiðingum. Allt fyrir Ameríku og sadismann sem að hún hefur breitt út um heiminn, sadismann sem að nú ræður algjörum ríkjum í Ísrael. Niður með siðmenninguna, upp með sadismann er slagorð vorra daga. Hræðilegt er að upplifa það.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: