- Advertisement -

Dönum líkar ekki tónninn, utanríkisráðherra talar um áherzlubreytingar og forsætisráðherra treystir á vernd

Ole Anton  Bieltvedt skrifar:

Það, sem er að gerast í Bandaríkjunum (BNA) um þessar mundir, er ekki aðeins undarlegt, heldur einstakt, nánast ótrúlegt, þar er kominn til valda, með lýðræðislegri kosningu, maður, sem varla getur talizt með fullu ráði og rænu, er augljóslega líka haldinn stórmennskubrjálæði, og einkennast athafnir hans og framganga öll af því. Manni verður helzt hugsað til Mussolini og Hitlers.

Þrátt fyrir skýlausar skuldbindingar um, að BNA skuli verja öll önnur NATO ríki, Grænland og Danmörk auðvitað meðtalin, tryggja frelsi þeirra og sjálfstæði, hótar forsetinn sjálfur, að leggja Grænland undir BNA, líka með valdi, ef þörf krefur. Ekki er hægt, að ganga harðar gegn loforðum sínum og skuldbindingum, svíkja meir. Trúverðugleiki og siðsemi á núlli.

Í eðli sínu er það, sem hér er að gerast, miklu meira siðleysi og brot, verri svik, allt miklu brútalla, en innrás Pútíns í Úkraínu, sem auðvitað var og er nógu slæm og allir formdæma og standa hart gegn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…sem er flokkaður með mestu bjálfum sögunnar.

Viðbrögð við yfirgangi og svikum Trump eru hins vegar þau undarlegustu. Danir kunna ekki við tóninn, utanríkisráðherra talar um áherzlubreytingar og forsætisráðherra segist enn treysta BNA – já, undir stjórn Trump – til að tryggja frelsi, sjálfstæði og varnir Íslands.

Er þetta eitthvert grín, eða vantar hér heila brú í þetta annars ágæta fólk? Vonandi hefur hræðsla og undirlægjuhátturinn ekki tekið völd meðal þeirra. Reyndar eru þau ekki ein um undirgefni eða þýlindi við Trump. Keir Starmer virðist ætla að feta beint í fótspor Neville Chamberlain, sem taldi „appeasement policy“, eftirlátsstefnu, góða leið í samskiptum við Hitler, og féll svo kylliflatur á því. Hætt er við, að Starmer og aðrir þeir, sem telja þá stefnu góða, líka okkar kæru landskonur, fari illa á því. Sömu leið og Chamberlain, sem er flokkaður með mestu bjálfum sögunnar.

Ég nefndi Hitler hér að ofan. Ýmislegt er nú að þróast í BNA, eins og gerðist eftir að Hitler tók völdin í Þýzkalandi.

M.a. hefur það verið í fréttum, að tyrkneskur doktorsnemi, stúlka, sem stundar nám við amerískan háskóla, hafi verið handtekin á götum úti, þar sem hún var á gangi á leið í kvöldverðarborð. Að handtökunni stóðu óeinkennisklæddir, líka grímuklæddir, menn, sem sögðust vera lögreglumenn. Var doktorsneminn færð í ómerkta bifreið, með valdi, ekki fór hún sjálfviljug, og ekið með hana í burtu. Seinna kom í ljós, að stúlkan hafði verið flutt í sérstakar fanagbúðir fyrir óæskilega akivista 2.000 kilómetrum í burtu.

Ekki skal hér fullyrt, að nýtt Gestapo…

Hver var svo glæpur þessa tyrkneska doktorsnema, hverjar voru sakir stúlkunnar? Eftir því sem bezt verður séð, voru sakirnar þær, að hún hafði staðið með Palestínumönnum í Gazastríðinu og gagnrýnt Ísraelsmenn, m.a. með því að skrifa undir yfirlýsingu þarum, ásamt öðrum námsmönnum.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var svo spurður um þessa handtöku og nauðungarflutning þessarar ungu baráttukonu, sem hafði unnið sér það eitt til saka, að hafa eigin stjórnmálaskoðun og berjast fyrir henni, og svaraði Rubio því til, að það væri rétt, það væri verið að elta uppi fólk, sem væri að grafa undan „heilbrigðri og eðlilegri skoðanamyndun“ (réttum skoðunum skv. Trump) í Bandaríkjunum, og, að það væri búið að ná um 300 af þessum „brjálæðingum“, eins og hann orðaði það. „Lunitics“.

Hann bætti því svo við, að yfirvöld og lögregla væri líka að eltast við glæpagengi. Fyrir honum voru þessir tveir ólíku hópar greinilega nokkurn veginn samskonar, alla vega sambærilegir.

Ekki skal hér fullyrt, að nýtt Gestapo, amerísk útgáfa, sé í uppsiglingu í Bandaríkjunum, en margt er þar að þróast með svipuðum hætti og var í Þýzkalandi eftir að Hitler komst þar til valda 1933.

Eru vaxandi tilvik í gangi um yfirgang, réttindasviptinar og ofbeldi stjórnvalda gagnvart minnihlutahópum og annarsþenkjandi, og virðist frelsi til orðs og æðis, almenn mannréttindi, eiga í vök að verjast.

Út á við sýnir Trump-stjórnin ekki aðeins af sér yfirgangs- og ofbeldishneigð, vanvirðingu við samninga, skuldbindingar og alþjóðlegar samþykktir, líka við alþjóðalög, heldur líka áfergju og græðgi, t.a.m. gagnvart Úkraínumönnum, þar sem þeir vilja hirða, eða alla vega fleyta rjómann ofnan af þeirra helztu auðlindum – en Úkraínumenn kalla nú þá nálgun „ránstilraun“ –  líka gagnvart Mexíkó og Kanada, þar sem Trump riftir fyrirvaralaust USMCA-viðskiptasamningnum, sem ríkin þrjú gerðu með sér 2020 og átti í grunninn að gilda til 2036.

Það er varla hægt trúa þessu tali forsætisráðherra…

Jafnt raunarlegt og það er, eru Bandaríkin, undir stjórn Trumps, fyrir mér að verða hættulegasta, gráðugasta og siðlausasta ríki heims.

Forstætisráðherra sagði þetta á RÚV nýlega:

Já, við getum treyst Bandaríkjunum áfram. Það er mjög mikilvægt, að við getum treyst Bandaríkjunum áfram. Þetta hefur verið mjög farsælt varnarsamstarf…“

Það er varla hægt trúa þessu tali forsætisráðherra, að það sé alvarlega meint. Heldur ekki tali utanríksráðherra um „áherzlubreytingar“ í utanríksstefnu BNA.

Í öllu falli væri það gott fyrir þessar ágætu konur báðar – og þá um leið fyrir öryggi og velferð okkar Íslendinga – að þær og ríkisstjórnin öll fari að hugsa þessi mál og þessa afstöðu upp á nýtt og opna augun fyrir því, að við eigum hvergi heima nema í Evrópu, í náinni samvinnu og fullum tengslum við okkar bræðra- og systraþjóðir þar, aðildarríki ESB, en þar virðist nú standa síðasta vígi lýðræðis og frelsis, til orðs og æðis, og vernd þess, í heiminum.

Taka þarf skrefið til þjóðaratkvæðis um óskuldbindandi framhalds-samninga við ESB eins fljótt og verða má, helzt í haust!

Höfundur er samfélagsrýnir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: