- Advertisement -

Veðjar Sjálfstæðisflokkur á öryrkjana?

Jóhann Páll Jóhannsson:

„Okkar stefna snýst um að veðja á einstaklinginn,“ segir í auglýsingu Sjálfstæðisflokksins sem blasir við okkur á samfélagsmiðlum þessa dagana. En hvaða einstaklingur er það sem Sjálfstæðisflokkurinn veðjar á?

Er það örorkulífeyrisþeginn sem reiðir sig á grunnbætur langt undir lágmarkslaunum og er refsað með himinháum jaðarsköttum í formi tekjutengdra skerðinga þegar hann stígur inn á vinnumarkaðinn? Veðjar Sjálfstæðisflokkurinn á námsmanninn sem þarf að vinna meira samhliða námi en námsmenn á hinum Norðurlöndunum vegna lágra framfærslulána og lágs frítekjumarks en er neitað um atvinnuleysistryggingar?

Veðjar Sjálfstæðisflokkurinn á fólkið sem hefur misst vinnuna í kórónukreppunni? Formaður flokksins hefur talað fyrir því að bótunum sé haldið lágum svo fólk hafi „nauðsynlegan hvata“ til að vinna. Afleiðingarnar af þeirri stefnu sjáum við í nýlegri skýrslu Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, þar sem fram kemur að helmingur atvinnulausra eigi erfitt með að ná endum saman og meirihlutinn hafi þurft að neita sér um heilbrigðisþjónustu undanfarna mánuði.

Forréttindaklíkurnar á Íslandi veðja á Sjálfstæðisflokkinn.

Sjálfstæðisflokkurinn veðjar ekki á þetta fólk heldur veðjar hann á þá sem þéna best og eiga mest. Forstjórann á ofurlaununum sem prísar sig sælan að hvergi á Norð­ur­lönd­un­um greið­ir há­tekju­fólk jafn lága skatta og á Íslandi. Eiganda stórútgerðarinnar sem fær úthlutaðan kvóta langt undir markaðsverði, greiðir sér 200-föld árslaun fiskvinnslustarfsmannsins í arð en borgar miklu lægra skatthlutfall af tekjunum sínum en hann.

Forréttindaklíkurnar á Íslandi veðja á Sjálfstæðisflokkinn. Að flokkurinn verði áfram við völd og haldi áfram að verja hagsmuni þeirra með kjafti og klóm.

Við hin skulum veðja hvert á annað og samfélagið allt. Hjálpast að við að reisa Ísland upp úr kórónukreppunni og vinna markvisst gegn ójafnaðaráhrifum hennar. Lækka jaðarskatta öryrkja, eldri borgara og barnafjölskyldna jafnvel þótt það kalli á að aðeins þyngri byrðar verði lagðar á þá sem eiga og þéna mest. Ráða bót á undirmönnun almannaþjónustunnar, styðja og valdefla þá sem missa vinnuna og skapa fjölbreytt störf um allt land.

Um þessi grundvallaratriði snúast kosningarnar í haust.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: