Skoðanakönnun: Vísir birtir frétt af skoðanakönnun
um vilja fólks til hvalveiða. Meðal annars er útlistað afstaða kjósenda eftir
stuðningi við stjórmálaflokkana:
„Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá í niðurstöðum að þau eru hlynntust veiðunum sem kjósa Miðflokkinn, 43 prósent, og Sjálfstæðisflokkinn, 24 prósent. Þau sem mest eru andvíg þeim eru líklegust til að kjósa Samfylkinguna, Pírata, Sósíalistaflokkinn og Vinstri græn.“

Alls eru um 41 prósent andvíg veiðum á langreyðum og 26 prósent hvorki hlynnt né andvíg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Niðurstöður sýna einnig að 33 prósent eru fylgjandi veiðunum.
Meira úr Vísi: „Spurt var hvort að fólk væri hlynnt eða andvígt veiðum á langreyðum. Í niðurstöðum má sjá töluverðan kynjamun þar sem konur eru mun andvígari veiðunum en karlar en 44 prósent karla eru hlynnt veiðunum en aðeins 21 prósent kvenna.
Þá eru eldri karlar líklegri til að styðja veiðarnar en þeir sem yngri eru. Almennt er yngra fólk andvígara veiðunum en það eldra. Um 21 prósent yngsta aldurshópsins er hlynnt veiðunum en 45 prósent þeirra sem eru í elsta aldurshópnum.“