- Advertisement -

Ásakanir stjórnenda Gildis voru að sjálfsögðu uppspuni

Sólveig Anna Jónsdóttir:

Frábærir menn sem að hafa barist og beitt kröftum sínum fyrir réttlátan málstað. Það er tímabært að stjórnendur Gildis biðji þá afsökunar á rógburðinum.

Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, ásamt Einari Hannesi Harðarsyni, formanni Sjó­manna- og Vélstjórafélags Grinda­vík­ur hafa vikum saman barist fyrir því að lífeyrissjóðirnir, m.a. Gildi, kæmu til móts við Grindvíkinga sem eru með húsnæðislán hjá sjóðunum, með því að fella niður vexti og verðbætur. Viðbragð stjórnenda Gildis við þessum sjálfsögðu réttlætiskröfum var að ásaka þremenningana um ofbeldi og ógnandi framkomu við starfsfólk Gildis vegna friðsamra mótmæla sem að haldin voru í móttöku skrifstofu Gildis og þeir höfðu skipulagt. Þessar grófu ásakanir stjórnenda Gildis voru að sjálfsögðu uppspuni frá rótum. Svo kurteislega sé tekið til orða.

Ég rifja þetta upp vegna þess að ég heyrði ekki betur en að í kvöldfréttum kæmi fram ríkisstjórnin léti eins og það yrði henni að þakka ef að lífeyrissjóðirnir kæmust loksins að réttri niðurstöðu og stæðu með fólkinu í Grindavík. Sannleikurinn er aftur á móti sá að ef hinir háu lífeyrissjóðs-herrar komast nú loksins að því að þeir geti liðsinnt samlöndum sínum sem eru í eins erfiðri stöðu og hægt er að hugsa sér á að þakka Herði, Ragnari Þór og Einari Hannesi fyrir að hafa staðið þessa vakt frá fyrsta degi og tekið slaginn. Fyrir það þurftu þeir m.a. að þola lygar og rógburð frá þeim sem að hefðu frekar átt að einbeita sér að því að liðsinna Grindvíkingum.

Frábærir menn sem að hafa barist og beitt kröftum sínum fyrir réttlátan málstað. Það er tímabært að stjórnendur Gildis biðji þá afsökunar á rógburðinum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: