Facebook: „Við Íslendingar höfum verði minntir á það síðustu daga að heimurinn er breyttur. Sótt er að alþjóðlegu viðskiptafrelsi með tollum og verndaraðgerðum gegn tollastríði. Ísland er lítið, útflutningsdrifið hagkerfi sem hefur hagnast mjög á tollfrelsi og hindrunarlitlum viðskiptum. Við þurfum að haga málum þannig að vði stöndum vörð um stöðu okkar og samkeppnishæfni í þessum breytta heimi.
Pistill dagsins var um tíðindi vikunnar, hvað þau þýða og hið stærra samhengi sem við þurfum að taka með í myndina til að skilgreina og tryggja hagsmuni Íslands,“ skrifaði Dagur B. Eggertsson alþingismaður.
Fyrirsögnin er sótt í greinina hér að neðan.
