Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu skrifaði:
Það er ótrúlegt að verða vitni að uppnámi þeirra sem að eigin sögn treystu þjóðinni betur en aðrir, yfir því að þjóðin komst að annarri niðurstöðu en þeim þóknaðist. Trump-isminn leynist víða og kannski mest hjá þeim sem þykjast minnst kannast við slíkt.
Eitt er það sem mér þykir leiðinlegt að sjá, og þá er ég ekki að tala um þá vitfirringa sem vilja lögreglurannsókn á Morgunblaðinu og að gengið verði fram hjá niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, heldur að nú séu já-arar að reyna að mála þá mynd að vondu ríku mennirnir hafi notað vinstrimenn sem einhverjar dyramottur og líti á þá sem nothæfa fávita.
Nú á ég þónokkra vini vinstramegin línunnar, meira að segja langt vinstramegin línunnar, sem eru mér afar kærir og allt er það skarpgreint fólk, þótt það hafi að mínu mati stórfurðulegar stjórnmálaskoðanir. Þeim líður eins gagnvart mér. Það hefur hingað til ekki plagað mig að eiga vini sem deila ekki sömu stjórnmálaskoðun. Þvert á móti get ég haft mjög gaman af því að karpa um okkar ólíku sýn á hlutina og gera jafnvel góðlátlegt grín hvert að öðru.
Ég þekki ekki þann hægrimann sem ekki ber virðingu fyrir framlagi þeirra vinstrimanna sem tóku þátt í baráttunni um þetta sameiginlega markmið. Ég held reyndar að margir hafi lært helling af því, þótt vissulega hafi það verið skrítin og jafnvel stundum óþægileg tilfinning að berjast hlið við hlið einhvers sem í grundvallaratriðum deilir ekki sömu sýn á samfélagið, en þó þeirri að Íslandi sé betur borgið utan ESB en innan þess.
Ég held að án þessarar þverpólitísku samstöðu, þvert á stéttir fólks, þá hefði nei-ið ekki orðið ofan á.
Nú keppast flokkarnir auðvitað við að klappa sjálfum sér á bakið og tileinka sér sigurinn – meira að segja ríkisstjórnarflokkarnir, eins ótrúlegt og það nú er. En í mínum huga blasir við að enginn einn flokkur hefði getað þetta án hinna. Það var samtakamátturinn sem sigldi sigrinum í land og ég trúi því einlæglega að til skemmri og lengri tíma þá hafi allir sigrað með þessari ákvörðun, þótt sumir sjái það kannski ekki þannig í dag.
Greinina birti Andrea á Facebook. Við leyfum okkur að birta hana hér.