- Advertisement -

Ef einhver er rangstæður þá er það hæstvirt ríkisstjórn

Alþingi:

Snorri Másson Miðflokki:

„Hér undir liðnum fundarstjórn forseta komu fram ummæli af hálfu háttvirts þingflokksformanns Samfylkingarinnar þar sem látið var að því liggja að það væri eitthvað óeðlilegt við það að menn væru að ræða hér efni skilaboða sem komin eru fram í fjölmiðlum, fleiri en einum, nær öllum helstu fjölmiðlum, sem eru vissulega frá fyrrverandi aðstoðarmanni þáverandi hæstvirts menntamálaráðherra.

Ég vil einnig vekja athygli á því að ástæða þess að þau eru rædd hér sem viðeigandi efni í sambandi við hæstvirta ríkisstjórn er að það er ljóst af þessum skilaboðum að þessi aðstoðarmaður virðist vera að flytja ráðherranum skilaboð ríkisstjórnarinnar. Það er ekki einhver skoðun eða einkaskoðun aðstoðarmannsins sem kemur þarna fram heldur er verið að flytja ráðherranum skilaboð frá ríkisstjórninni. Þannig hljóma þessi skilaboð. Ef menn geta borið það til baka þá er það sjálfsagt, en þannig kemur þetta okkur fyrir sjónir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Og eins og háttvirtur þingmaður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir á þá er það eftir að hæstvirtur menntamálaráðherra hefur farið með rangfærslur í fjölmiðlum um efni þessara samskipta sem háttvirtur þingmaður sér sig tilneyddan til að birta þessi samskipti. Þannig að ef einhver hérna er rangstæður þá er það hæstvirt ríkisstjórn og hæstvirtir ríkisstjórnarflokkar en ekki þeir sem reyna að komast til botns í þessum vanda.“

En hvað sagði þingflokksformaðurinn?

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar:

Guðmundur Ari í ræðustól.

„Ég verð að viðurkenna að mér finnst stjórnarandstaðan leggjast ansi lágt í þessum óundirbúna fyrirspurnatíma, er hér trekk í trekk að koma upp og velta sér upp úr einkaskilaboðum milli aðstoðarmanns fyrrverandi ráðherra. Jú, gott og vel, það er pólitík í þessu eins og öðru og fólk vill ræða þetta en ég verð að koma hér upp undir fundarstjórn forseta og setja spurningarmerki við það að það sé ekki stigið inn í þegar hér er verið að nafngreina einstakling úti í bæ og láta ráðherrann svara fyrir einkaskilaboð sem hann er ekki aðili að. Ég geri mér alveg grein fyrir því að hér birtast einhver skilaboð í fjölmiðlum en mér þykir ekki eðlilegt að þingmenn komi hér upp í ræðustól Alþingis og séu að nafngreina þessa fyrrverandi starfsmenn ríkisins og láta ráðherra svara fyrir hennar orð. Mér þykir það ómálefnalegt og eitthvað sem forseti ætti að stíga inn í.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: