- Advertisement -

Meirihlutinn fælir fólk úr borginni

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir meirihluta borgarstjórnar sýna takmarkaðan vilja til að mæta fjölskyldufólki. „Skert leikskólaþjónusta er skotheld leið til að fæla ungar fjölskyldur frá borginni, í önnur sveitarfélög – og skotheld leið til að draga úr framgangi kvenna á vinnumarkaði. Óskiljanleg aðgerð.“

Hildur segir að meirihlutinn hafa hafnað tillögu sinni um aukna samræmingu frídaga milli skólakerfis og atvinnulífs. „Á sama fundi ákvað meirihlutinn svo að skerða leikskólaþjónustu í borginni.“

Hildur segir einnig: „Fáir eiga þess kost að yfirgefa vinnu um klukkustund áður en hefðbundnum vinnudegi lýkur. Skert þjónusta mun eflaust koma verst niður á einstæðum foreldrum, vinnandi konum og láglaunafólki.“

Nýjar fréttir daglega – miðjan.is

Stuðningsreikningur okkar er; 515-26-521009, kennitala: 521009-2920.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: