- Advertisement -

Vonsvikin með helstefnu ríkisstjórnarinnar

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins.
Mynd: ÖBÍ.

„Við leyfðum okkur að vona, en það er nú ljóst að engin breyting verður, fagurgali ríkisstjórnarinnar um að útrýma fátækt eru bara það, fagurgali. Enn eitt árið er öryrkjum haldið rígföstum í fátækragildru og enn breikkar bilið milli örorkulífeyris og lágmarkstekjutrygginar. Um næstu áramót verður örorkulífeyrir 86 þúsund krónum lægri,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, eftir að hafa kynnst sér fjárlagafrumvarp næsta árs.

Öryrkjabandalag Íslands lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum með að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ætli öryrkjum áfram að treysta á matargjafir til að lifa af. Í fjárlagafrumvarpinu er ekki að finna neina stefnubreytingu frá þeirri helstefnu að halda öryrkjum í fátækt.  Hafi einhver átt von á að í því frumvarpi leyndust efndir yfirlýsinga Katrínar sem stjórnarandstæðings, frá því fyrir um 4 árum, verður viðkomandi fyrir vonbrigðum. Hækkun örorkulífeyris verður 3,6% um næstu áramót. Fátækt fólk þarf því enn að bíða.

„Eftir þessa hækkun verður framfærsluviðmið almannatrygginga 265.044 krónur fyrir skatt, sem, að teknu tilliti til þeirra skattkerfisbreytinga sem koma til framkvæmda um áramótin, mun skila rétt tæpum 233 þúsund krónum í vasa þeirra sem lifa af örorkulífeyri.”


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: