- Advertisement -

Heilsugæslan er orðin bráðaþjónusta

„Á landsbyggðinni eru svæði sem er útlit fyrir að verði heimilislæknislaus.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Viðreisn.

„Ríkisstjórnin kynnti nýlega það sem hún kallar heildstæða áætlun um uppbyggingu innviða í heilbrigðiskerfinu til 2030. Ofboðslega stórt nafn sem fjallar um að það á að byggja nýtt hús,“ sagði Þorbjörg Sigríðru Gunnlaugsdóttir á Alþingi.

„Það er mikilvægt að byggja nýtt hús því spítalinn er jú löngu kominn á tíma. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, segir þó um þessa áætlun ríkisstjórnarinnar með langa nafnið, með leyfi forseta: „Þarna er ekki talað um neina aðra þætti en steinsteypuna við Hringbraut, að það eigi að klára þetta hús.“ Hér birtist aftur óþægilega skýrt að eftir sex ára setu er stefnan engin og staðan í dag er sirka þessi: Fólk sem þarf á þjónustu heimilislæknis að halda hér á höfuðborgarsvæðinu fær að heyra að næsti lausi tími sé í september. Fólk er spurt hvort það sé nokkuð í brýnni neyð. Heilsugæslan er orðin bráðaþjónusta. Hundrað prósent viðsnúningur frá orðum ríkisstjórnarinnar um að heilsugæslan eigi að vera fyrsti viðkomustaður.“

„Á landsbyggðinni eru svæði sem er útlit fyrir að verði heimilislæknislaus. Amma og afi liggja inni á Landspítala því hjúkrunarrými eru ekki til. Börn eru á biðlistum í mörg ár. Spítalinn þarf að taka við öllum vegna þess að aðrir angar kerfisins geta ekki tekið við fólki. Fólk sem ekki kemst til heimilislæknis eða á hjúkrunarheimili fer á bráðamóttökuna þar sem það situr og bíður,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

„Formaður Læknafélagsins talar svo um starfsfólkið, hjartað í heilbrigðiskerfinu. Hvort sem við lítum á sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga eða lækna er engin stefna um það hvernig eigi að tryggja að nýja húsið verði mannað. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að hjúkrunarfræðingar hætti störfum vegna álags eða hvetur til þess að sérfræðilæknar velji að koma heim úr námi. Biðlistar eru í dag helsta einkenni heilbrigðiskerfisins, biðlistar eftir heilbrigðisþjónustu og biðlistar lækna eftir því að fá samning við ríkið. Hvað segir hæstv. heilbrigðisráðherra um þessi orð formanns Læknafélagsins? Hefur hún á réttu að standa?“

„Uppbygging heilbrigðiskerfisins, eins og ég hef margoft sagt í þessum ræðustól, má ekki vera háð efnahagssveiflum.“

Willum Þór Þórsson.

Svokallaðir sjálfvirkir sveiflujafnarar

Willum Þór Þórsson ráðherra:

„Háttvirtur þingmaður fór ágætlega yfir allar þær áskoranir sem blasa við okkur í heilbrigðiskerfinu þegar kemur að mönnun og fólkinu sem er á bak við það að veita þjónustuna. Það verður áskorun inn í framtíðina. Það er alveg hárrétt sem háttvirtur þingmaður dregur hér fram, að við erum að kljást við biðlista víða. Við erum líka að horfa á fjárfestinguna utan um fólkið okkar og kynningin á þessum fyrsta áfanga í uppbyggingunni fól það í sér. Uppbygging heilbrigðiskerfisins, eins og ég hef margoft sagt í þessum ræðustól, má ekki vera háð efnahagssveiflum. Velferðarkerfið okkar á ekki að vera háð efnahagssveiflunni.“

Næst sagði ráðherrann:

„Hins vegar eru í félagsmálahlutanum, eðli máls samkvæmt, svokallaðir sjálfvirkir sveiflujafnarar þegar kemur að bótakerfum og slíku. Uppbyggingin þarf að byggja á langtímahugsun og þessi kynning sneri að því sem tekur mið af breytileika í þjónustuþörfum samfélagsins og nauðsyn þess að nýta okkur tækni, nýsköpun og vísindi til framþróunar og umbóta. Við þurfum einnig að tryggja heilbrigðisstarfsfólki, þeim sem á þjónustunni þurfa að halda og aðstandendum þeirra fyrsta flokks aðstæður. Um það snýst þessi kynning og fyrsti áfanginn. Það er mjög ánægjulegt að við, hæstvirt ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, séum að forgangsraða í þágu uppbyggingar heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir aðhald gegn verðbólgu. Það styrkir innviði heilbrigðiskerfisins og verður dýrmætt til framtíðar í öllu því samhengi sem háttvirtur þingmaður dró ágætlega fram, í þeim áskorunum sem eru ekki að fara frá okkur.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: